kosningar til sveitarstjórna.
Herra forseti. Ég vildi við þessa 3. umr. málsins fá tækifæri til að lýsa afstöðu minni til þess í aðeins lengra máli en gefst kostur á í atkvæðaskýringum eða yfirlýsingum um atkvæðagreiðslur.
Sú breyting sem frumvarpið felur í meginatriðum í sér lýtur að því að lækka viðmið fyrir kosningaaldur úr 18 árum í 16 ár. Þetta er að mínu mati talsvert veigamikil breyting, ólíkt því sem ýmsir hafa haldið fram í umræðum fram að þessu, vegna þess að þarna er verið að breyta einu af grundvallarviðmiðunum í sambandi við kosningarrétt í landinu. Að því leyti er þetta veigamikil breyting og ef menn skoða það í samhengi við annað er rétt að minna á að í sambandi við kosningarrétt til Alþingis þykir ekki nægja að hafa kosningaaldurinn bundinn í kosningalögum eða lögum um alþingiskosningar, heldur er ákvæðið um 18 ára kosningarrétt til Alþingis bundið í stjórnarskrá. Menn átta sig á því að þetta er ekki léttvæg tæknileg breyting, heldur raunveruleg grundvallarbreyting.
Eins og fram kom í máli mínu við 2. umr. er að mínu mati hægt að draga mörkin í sambandi við kosningarréttinn hvort sem menn vilja við 16 ár eða 18 ár. Í sjálfu sér eru engin vísindaleg eða fræðileg rök sem styðja aðra hvora niðurstöðuna. Það er hægt að rökstyðja 16 ára markið og það er hægt að rökstyðja 18 ára markið. Þegar 18 ára markið var valið á sínum tíma var gengið út frá því að þar væri um að ræða þann aldur þar sem fólk væri almennt komið með þann þroska að ráða ráðum sínum og hangir auðvitað saman við sjálfræðisaldur. Í skilningi laganna eru ungmenni börn fram að 18 ára aldri, en verða sjálfstæðir einstaklingar með sjálfræði og fjárræði 18 ára gömul. Ég geri ráð fyrir því að þegar ákvörðunin um 18 ára aldursmarkið var tekin hafi verið horft til þeirra sjónarmiða að þarna væri um að ræða aldursmörk sem almennt væri eðlilegt þegar litið væri til þess hvenær einstaklingar væru orðnir fullveðja, ef svo má segja.
Það er vissulega rétt að í lögum eru víða önnur aldursmörk og ungmenni fá ýmis réttindi við annan aldur en hér um ræðir. Þó má segja við skoðun á lagaumhverfinu að 18 ár eru almennt það viðmið sem veitir mest réttindi og um leið mestu skyldurnar.
Það veldur því að mér finnst ástæðulaust að gera þessa breytingu sem hér er lögð til nema það sé þá skoðað í því heildarsamhengi hvenær við teljum almennt að einstaklingar séu komnir með þann þroska að þeir séu fullgildir þátttakendur í samfélaginu. Ég er tilbúinn að skoða 16 ára aldursmarkið í því sambandi. Mér finnst ekki óeðlilegt að það sé skoðað, m.a. út frá ýmsum rökum um þátttöku í þjóðfélaginu, þroska og þess háttar. Mér finnst eðlilegt að það sé skoðað en ég átta mig ekki alveg á hvaða rök eru í sjálfu sér fyrir því að taka þennan þátt út þegar við erum enn þeirrar skoðunar að einstaklingar á aldrinum 16 til 18 ára eigi í meginatriðum að vera í forsjá foreldra sinna, lúta ákvörðunum þeirra og geti ekki tekið mikilvægar ákvarðanir sem varða þeirra persónulega líf nema með leyfi foreldra sinna. Mér finnst svolítið á skjön að taka þetta út úr með þessum hætti en væri tilbúinn að fara í þá umræðu að draga þessi mörk almennt við 16 ár frekar en 18 ár ef menn eru þeirrar skoðunar að fyrir því séu góð og gild rök.
Þetta varðar sem sagt efnisinntak málsins. Ég myndi með engu móti telja fráleitt eða útilokað að færa kosningarréttinn niður í 16 ár, bæði í sveitarstjórnarkosningum og alþingiskosningum ef svo ber undir, samhliða því að þá væri skoðað hvernig við almennt teljum rétt að treysta ungmennum til að taka mikilvægar ákvarðanir sem varða þeirra persónulegu mál. Ákveðin ósamkvæmni eins og ég segi er í því að greina þarna á milli, taka þetta út úr og meðhöndla með einhverjum léttvægari hætti en aðrar þær skyldur og þau réttindi sem ungmenni takast á herðar sem fullgildir þátttakendur í samfélaginu.
Hér hefur verið rakið að til séu dæmi, þau eru reyndar ekkert óskaplega mörg, um að kosningarréttur hafi verið færður niður í 16 ár í löndum í kringum okkur. Dæmin um 18 ára kosningarréttinn eru þó miklu fleiri. Í okkar helstu nágrannalöndum er eina dæmið frá Noregi þar sem kosningarréttur til sveitarstjórna var fyrir stuttu lækkaður í 16 ár. Ég hef heyrt það á máli manna í umræðunni sem til þekkja að sú tilraun hafi ekki tekist vel, þ.e. hafi valdið einhverjum vonbrigðum. Skýringin sem er gefin er sú að ekki hafi verið nægur tími til undirbúnings. Það hafa menn sagt um þessa tilraun í Noregi. Gallinn á því hvernig þetta var gert í Noregi er sá að ekki var nægur tími til undirbúnings. Ætlum við að læra af þeirri reynslu? Ætlum við að segja: Við ætlum ekki að falla í sömu pytti og Norðmenn? Nei, nei, hér er talað um að láta þetta taka gildi eftir tvo mánuði. Tími til undirbúnings er knappur og miklu knappari en var í Noregi á sínum tíma.
Annað dæmi sem hefur verið nefnt og ég þekki ekki til og get ekki dæmt um er frá Austurríki þar sem kosningarréttur er 16 ár og reyndar Möltu líka. Í þjóðaratkvæðagreiðslu í Skotlandi var kosningarréttur færður niður í 16 ár. Þátttaka var þar mikil. Ég geri mér enga grein fyrir því hvort það hafði önnur áhrif en það olli engum sérstökum vandræðum, ég held að enginn hafi haldið því fram að það hafi valdið neinum vandræðum. Satt að segja þarf svona breyting, ef hún er vel undirbúin, ekki að valda neinum vandræðum en við erum hins vegar í þeirri stöðu að þegar við erum að tala um þetta mál í lok mars eru einungis tveir mánuðir til kosninga til sveitarstjórna þannig að allur sá tími sem menn eru að velta fyrir sér að nota til að undirbúa málið er nú ekki meiri en þeir dagar sem þar er um að ræða, átta eða kannski níu vikur. Níu vikur ef mér reiknast rétt til.
Það má vera að til séu áætlanir um það hvernig eigi að standa að þessu. Það hefur ekki komið fram við þessa umræðu að fyrir liggi áætlun um hvernig eigi að kynna þetta fyrir þeim sem eru að fá kosningarrétt með þessu, það hefur ekki komið fram. Það hefur ekki heldur komið fram hvernig eigi að framkvæma þetta tæknilega. Mér er sagt að gestir sem hafa komið fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafi sagt að þetta sé hægt en sé erfitt. Það segja þeir sem eiga að framkvæma kosninguna. Sveitarstjórnir bera helstu ábyrgð á framkvæmd sveitarstjórnarkosninga. Sveitarstjórnirnar hafa mælt gegn því að þetta verði afgreitt með svona skömmum fyrirvara, þ.e. Samband íslenskra sveitarfélaga. Allt það veldur manni ákveðnum áhyggjum þó að það sé alveg örugglega ekki útilokað að gera þetta á þeim tíma sem um er að ræða. Það er ábyggilega ekki útilokað. Spurningin er hvort það sé varfærnisleg nálgun eða skynsamleg. Það er síðan annað mál, ef svo má segja.
Ég verð því, hæstv. forseti, að lýsa töluverðum efasemdum um að það sé rétt af þinginu að afgreiða þetta á þessum degi. Ég greiddi í gær atkvæði með tillögu um að fresta gildistöku, þ.e. greiddi atkvæði með tillögu sem fól það í sér að tekin væri sú prinsippákvörðun að lækka kosningarrétt í 16 ár en hins vegar myndi þingið og stjórnvöld gefa sér meiri tíma til undirbúnings. Það komu fram tvær slíkar tillögur í gær, en þær hlutu ekki náð fyrir augum þingmanna þá. Það kann að vera að ný tillaga af því tagi verði borin fram við 3. umr. Mér finnst það varfærnari nálgun en það að samþykkja þetta mál núna hérna og sjá svo til hvernig til takist með framkvæmdina. Ég verð auðvitað að segja að mér finnst nokkuð gáleysislega hafa verið farið með þetta mál í gegnum þingið miðað við eðli þess og umfang. Eins og ég sagði í upphafi ræðu minnar er það að breyta grundvallarskilyrðum kosningarréttar ekkert smámál, það er töluvert stórt mál, töluvert viðurhlutamikið mál eins og rakið hefur verið.
Þetta mál eins og ég kom inn á í umræðu um störf þingsins fyrr í dag í tilefni af orðum hv. þm. Ólafs Ísleifssonar er auðvitað ekki flokksmál. Það er borið fram af þingmönnum úr flestum flokkum á þingi. Fram hefur komið andstaða við það úr ýmsum flokkum. Mér heyrist fólk úr a.m.k. fjórum stjórnmálaflokkum á þingi vera þeirrar skoðunar upp til hópa að rétt væri að fresta gildistökunni, jafnvel þótt menn lýsi yfir stuðningi við grundvallarbreytinguna, efnisbreytinguna. Það er alveg ljóst að hér er ekki um að ræða einfalt mál eða óumdeilt. Ég held að við getum ekki haldið því fram.
Varðandi afstöðu einstakra flokka er rétt að ég upplýsi um að í mínum flokki, Sjálfstæðisflokki, hafa verið skiptar skoðanir um þetta mál. Á landsfundi flokksins sem haldinn var um síðustu helgi voru greidd atkvæði um málið og féllu atkvæði svo þegar tekin var afstaða til breytingar af þessu tagi að 260 sem voru í sal á þeim tíma greiddu atkvæði með 16 ára aldursmarki en 290 á móti. Menn sjá því að víða eru skiptar skoðanir um þetta. Fyrir tveimur og hálfu ári féllu atkvæði hins vegar þannig á landsfundi míns flokks að 16 ára aldursmarkið var samþykkt þannig að við sjáum að þetta er umdeilt víða. Afstaða manna ræðst ekki af flokksböndum, ef svo má segja.
Frá mínum bæjardyrum séð, hvernig sem við förum með þá efnisbreytingu sem ég teldi reyndar að þyrfti að hugsa betur áður en menn fara út í hana, er a.m.k. eðlilegt og skynsamlegt að við gefum okkur meiri tíma til að fara í gegnum þessa breytingu, undirbúum hana skynsamlega og vel með þeim aðilum sem eiga að sjá um framkvæmd kosninga, sjá um kynningu fyrir ungmenni og annað þess háttar, og skoðum og ræðum það í leiðinni hver afstaða okkar almennt er til þess hvenær ungmenni eiga að fá rétt til þess að ráða mikilvægum atriðum sem varða þeirra persónulega líf. Við höfum stigið það skref að miða þau mörk við 18 ár varðandi flesta þá þætti sem lúta að réttindum og skyldum í þjóðfélaginu.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mál lengra. Ég tel hins vegar að það sé mjög óvarlegt af okkur að afgreiða það án þess að fara betur í gegnum ólík sjónarmið og ræða nánar áður en við göngum til atkvæða.