kosningar til sveitarstjórna.
Ég hef á tilfinningunni að við hv. þm. Pawel Bartoszek ætlum að fara að hnita hringi hvor í kringum annan í þessum málum. Ég er almennt þeirrar skoðunar að það sé óvarlegt að breyta kosningalögum skömmu fyrir kosningar. Þess vegna hefði sennilega verið skynsamlegast að taka hvorugt málið á dagskrá. Ef meiri hluti þingsins aftur á móti, ekki ég, er þeirrar skoðunar að nægur tími sé til þess að taka ákvörðun sem varðar grundvallarbreytingu um það hvernig eigi að hafa kosningarrétt sé ég ekkert því til fyrirstöðu að meiri hluti þingsins samþykki líka að breyta fulltrúa, eða eins og það frumvarp gengur út á, gefa sveitarstjórnum sjálfum heimild til að ákveða fjölda sveitarstjórnarmanna. Ég held að ef meiri hluti þingsins telur það óhætt og engin vandkvæði fylgja því að breyta kjörskránni þegar það er vika þangað til utankjörfundaratkvæðagreiðsla á að hefjast sé enn minna mál að gefa svigrúm til breytingar á fjölda sveitarstjórnarmanna því að framboðslistar þurfa ekki að liggja fyrir fyrr en í maí.
Ég hef ekki áhyggjur af þessu. Ef meiri hluti þingsins á annað borð er þeirrar skoðunar að lok mars sé hæfilegur tími til að gera breytingar sem varða sveitarstjórnarkosningar skil ég ekki að það eigi bara við um þetta mál en ekki hitt.