kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegur forseti. Reyndar hafa margir framboðslistar í það minnsta verið kynntir þó að auðvitað hafi (BÁ: Enginn lagður fram.)enginn verið lagður fram formlega. Um það gilda frestir sem eru ákveðnir í kosningalögum þannig að þá þyrfti að gera lagfæringar á þeim eða klippa aftan af þeim eftir atvikum.
Það kom mér eilítið á óvart í máli hv. þingmanns, ef hann vildi vera svo vænn að hlýða á mál mitt, að hann ætli að láta skoðun meiri hluta Alþingis ráða prinsippafstöðu sinni í þessu máli. Ég hef sagt að úr því að ég telji ekkert því til fyrirstöðu að taka eitt mál á dagskrá og ræða það, öllu heldur að gera ákveðna breytingu, sé ég einnig tilbúinn að ræða hina og taka hana til umræðu þó að ég sé efnislega innilega ósammála þeirri tillögu. Það er ekkert í kerfinu sem gerir það ómögulegt að láta hana ná fram að ganga. Mér finnst þingmaðurinn ætla sér að nýta það að atkvæðagreiðslan hugsanlega fari fram með einum hætti, ef ég skildi hann rétt, og geta síðan réttlætt það að það sé allt í lagi að gera einhverjar aðrar breytingar líka. Annaðhvort hefur þingmaðurinn þá skoðun á að of stutt sé til kosninga til að gera grundvallarbreytingar á kosningalögum eða ekki. Þá á hann að standa á þeirri skoðun en ekki láta meiri hluta Alþingis stýra henni.