kosningar til sveitarstjórna.
Herra forseti. Eins og hv. þm. Pawel Bartoszek veit er ég eins og lauf í vindi þegar kemur að þessum málum. Ég taldi bara rétt að vekja athygli á þessu. Eins og ég segi sjálfur hefði ég kosið að við hv. þm. Pawel Bartoszek hefðum getað staðið saman að því að breyta ákvæðunum varðandi fjölda sveitarstjórnarmanna síðasta vetur og ég veit að hann lagði sitt af mörkum til þess að það mál kæmist til þingsins. Það hefði verið miklu heppilegra að ganga frá breytingum af þessu tagi á góðum tíma fyrir kosningar.
Ég vildi segja með breytinguna á fjölda sveitarstjórnarmanna að auðvitað er rétt að hafa það í huga að eins og hún er lögð fram í frumvarpi hv. þm. Jóns Gunnarssonar og fleiri þingmanna felur hún ekki í sér skyldu fyrir sveitarfélögin að breyta fjölda sveitarstjórnarmanna, heldur gefur hún þeim heimild til þess, svigrúm. Ef þau kjósa að gera breytingar getur sú breyting komið til. Auðvitað verðum við að horfa á það að tveimur mánuðum fyrir kosningar er skammur tími til að taka slíkar ákvarðanir og raunar í þeirri sveitarstjórn sem málið á mest erindi við, borgarstjórn Reykjavíkur, hefur þegar verið tekin meirihlutaákvörðun um að fara í tiltekna fjölgun. Það er út af fyrir sig engin sérstök ástæða til þess að ætla að meiri hluti borgarstjórnar Reykjavíkur myndi breyta þeirri afstöðu sinni jafnvel þó að lagaramminn væri víkkaður að þessu leyti.
Nú hefur hv. þm. Pawel Bartoszek ekki tækifæri til að koma í andsvar aftur en getur komið í ræðu, en ég velti fyrir mér hvort hann geti með einhverju móti slegið á þær áhyggjur sem hafa komið fram um það að tíminn hvað þessa breytingu varðar sé mjög knappur og (Forseti hringir.) setji þá sem eiga t.d. að framkvæma kosninguna í nokkurn vanda.