148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

afnám innflæðishafta og vaxtastig.

[12:25]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Herra forseti. Það er full ástæða til þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir að taka þetta mikilvæga mál hér upp og eins þakka ég ráðherra fyrir hans framlag. Við lentum í erfiðum aðstæðum og það er ástæða til þess að gleðjast yfir því hversu vel hefur gengið við að losna við þau höft sem voru sett á að ráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þau sættu nokkrum tíðindum, leyfi ég mér að segja, í sögu þeirrar merku stofnunar. Eftir sem áður erum við í þeirri aðstöðu að vera með höft, svokölluð innflæðishöft, frá árinu 2016 og áhrif þeirra eru vel þekkt. Það er engum blöðum um það að fletta að þau leiða annars vegar til hærra vaxtastigs en ella væri og auka þar af leiðandi kostnað, til að mynda hjá ríkissjóði, fyrirtækjum og heimilum. Þetta liggur alveg fyrir og um það er ekki deilt.

Hin megináhrifin eru þau að höftin stuðla að sínu leyti að því að halda aftur af styrkingu krónunnar sem er veigamikill þáttur líka. Þessi höft hafa staðið óbreytt núna um skeið. Það er áberandi að þau gera engan greinarmun á því hvort um sé að ræða vaxtamunarviðskipti, sem við viljum náttúrlega fyrir alla muni komast hjá og höfum ekki góða reynslu af, eða langtímafjárfestingu í íslensku atvinnulífi sem ég held að við getum flest vel hugsað okkur hérna.

Í seinni ræðu minni mun ég fjalla nánar um þessa þætti, herra forseti.