148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

afnám innflæðishafta og vaxtastig.

[12:46]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir að taka þátt í þessari umræðu og fyrir svör hans. Fyrst: Það er rangt að höft séu eðlileg afleiðing af sjálfstæðri peningastefnu eða fylgifiskur hennar. Það er rangt. Það er vont að menn skuli nálgast viðfangsefnið sem eru innflæðishöftin með þeim hætti. En það verður svo að vera og ekki er tími til þess að fara í gegnum það. Það er kannski ástæða til að við efnum til sérstakrar umræðu um það efni.

Höft, hvort heldur sem það eru innflæðishöft eða útflæðishöft, geta aldrei verið til lengri tíma hluti af einhverju hagstjórnartæki. Það er bara neyðin ein sem réttlætir að þeim sé beitt. Það er eitt að Seðlabanki Íslands hafi tæki og tól, hafi í vopnabúri sínu að beita hér ákveðnum höftum þegar kemur að innflæði erlends fjármagns, en það er annað beita þeim. Það eru engin rök fyrir því að Seðlabanki beiti heimild sinni til að hemja hér eða tempra innflæði erlends langtímafjármagns á skuldabréfamarkaði og innlánum með þeim hætti sem gert er. Það eru engin rök fyrir því. Það kunna að vera enn þá gild rök fyrir því að fara varlega og beita bindiskyldu þegar kemur að spákaupmennsku, vaxtamunarviðskiptum.

En það hvernig framkvæmdin er og hvernig Seðlabankinn hefur nýtt sér heimildir sem hann fékk í bráðabirgðaákvæði í lögum frá 2016 í lögum um gjaldeyrismál, hefur leitt til þess að þeir vextir sem ríkissjóður greiðir eru hærri en ella. Vextir sem fyrirtæki þurfa að greiða eru hærri en ella. (Forseti hringir.) Vextir sem heimili á Íslandi þurfa að greiða eru hærri en ella. Það eru engin rök fyrir því núna þegar við sjáum að aðeins er að slakna á í efnahagslífinu að gera þetta með þeim hætti sem gert er. Það er það (Forseti hringir.) sem ég er að reyna að koma á framfæri, hæstv. forseti.