148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[15:34]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að það væri hægt að afgreiða það á einu til tveimur árum að fara í slíka endurskoðun á öllu. En ég þykist samt vita að þeir sem mest styðja þetta frumvarp eru algjörlega á móti því að veita ungmennum nokkurn meiri rétt að öðru leyti.

Þeir munu aldrei leyfa þeim að kaupa einu sinni sígarettur og sennilega ekki að veipa heldur, en það er gott að fá atkvæðin þeirra, við treystum þeim til þess. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, lógískt samhengi hlutanna er mikilvægt og kerfiskarlar eru mikilvægir, vegna þess að ef það molnar undan kerfinu þá molnar undan okkur öllum. Kerfið þarf samt ekki að yfirtaka allt en það kerfi sem við höfum verður að virka.