148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[15:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, flutningsmaður er hv. þm. Andrés Ingi Jónsson, þar sem lagt er til að börn á aldrinum 16–17 ára fái kosningarrétt. Það má segja að þegar mælt er fyrir málinu í desember hafi það litið sakleysislega út og jafnvel hef ég heyrt á orð þingmanna sem segja að þeim hafi liðið óskaplega vel að hlusta á hvernig málið var lagt upp og þetta væri svona, afsakið enskuslettuna, „feel good“-mál, það gæti öllum liðið vel með þetta.

Síðan líður og bíður og málið þróast og vinnst. Þá fara einhvern veginn að koma í ljós að manni sýnist allt önnur sjónarmið: Tækifærismennska, það er blásið á hluti sem skipta virkilegu máli í þessu. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan menn stóðu hér útþandir af réttlætiskennd og gerðu kröfu um að dómsmálaráðherra segði af sér, lýstu yfir vantrausti á hana, vegna þess að hún hafði ekki hlustað á sérfræðinga í dómsmálaráðuneytinu. Og hvað gerist núna? Það koma sérfræðingar úr þessu sama dómsmálaráðuneyti, vara við því hvernig haldið er á þessu máli, og þá bara allt í einu skiptir það ekki nokkru máli. Hvatinn virðist allur annar en raunverulegur áhugi á að auka frelsi og sjálfsákvörðunarrétt barna á aldrinum 16–17 ára.

Eins og hv. þm. Brynjar Níelsson kom inn á hér áðan eru þetta mjög sérvalin réttindi sem henta ýmsum hér inni að eigin mati. Svo það sé sagt, nú kann ég ekki alveg reglurnar hvað það varðar, en hv. þingmaður sem nú er í forsetastóli sagði í gær efnislega að þeir flokkar sem teldu sig hafa minnstan stuðning þessa aldurshóps væru á móti þessu. Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki hugsað þennan vinkil fyrr en hv. þm. Jón Þór Ólafsson setti þetta fram.

Hvað gerðist síðan í atkvæðagreiðslunni í gær? Ég veit að hinn ágæti þingflokkur Pírata er duglegur í tölvuforritum og að setja hluti upp þannig að hann geti rýnt þá með sýnilegum og skiljanlegum hætti. Í atkvæðagreiðslunni í gær henti ég þessu inn í excel og alls konar litakóða og þess háttar. Það var stórskemmtilegt á að horfa þegar maður fór að sía eftir flokkum hvernig menn greiddu atkvæði. Þá kom í ljós að mesta fylgnin var hjá þeim sem hafa mesta sannfæringu fyrir því að þeir hafi eitthvert smáforskot í þessum hópi. Hjá þeim flokkum sem eru taldir hafa hóflegri stuðning í þessum aldursflokkum voru atkvæðin meira út og suður. Stundum lenda menn í því að eigin rök hitta þá fyrir. Hv. þm. Jón Þór Ólafsson lendir í því núna og fylgist með úr forsetastóli.

Þessi bragur er því miður allur á málinu. Þetta er ágætismál sem ég held að mjög margir séu sammála efnislega. Mér heyrist mjög margir sammála því að færa þessi réttindi til 16 og 17 ára barna en þeir vilja að það sé gert í einhverju samræmi við aðra hluti, það sé ekki tekið út eitthvert eitt afmarkað atriði og sagt: Hérna, krakkar mínir, þið megið kjósa mig, en þið megið ekki gera neitt annað. Það er ekki góður bragur á því.

Það sama á við hvað varðar verklag í kringum málið á seinni stigum. Nú er ég nýkominn til starfa en ég hef ekki séð annað eins kapphlaup í nokkru máli og þessu. Ég ætlaði hreinlega ekki að trúa þeim hraða sem hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd afgreiddi málið á eftir að það var klárað hér í 2. umr. Það var komið út úr nefndinni, með smáýkjum, korteri seinna. Á þessum nefndarfundi voru kallaðir fyrir gestir, ég ætla ekki að nota orðalagið til málamynda, en umfjöllunin var alveg örugglega ekki eins djúp æskilegt hefði verið miðað við þær athugasemdir sem fram hafa komið. Þarna komu á fund í gærkvöldi, í kvöldmatarhléinu í gær, fulltrúar dómsmálaráðuneytis og menntamálaráðuneytis. Sjónarmið fulltrúa dómsmálaráðuneytisins sem ég kom inn á áðan að hefðu sett þessi sjónarmið fram í skriflegri umsögn sinni án þess að neitt væri með þau gert, voru sett aftur fram á fundi nefndarinnar í gær og aftur er ekkert með þau gert.

Þetta eru sömu fulltrúar og menn vildu nota sem meginrökstuðning fyrir því að ráðherra sat hér undir vantrauststillögu vegna þess að hún hafði ekki farið í einu og öllu að ráðum þessara sömu aðila. Hér sitjum við og ætlum að breyta kosningalögum bara nokkrum vikum fyrir kosningar. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst eftir viku. Það er ægilega vondur bragur á þessu.

Það er nú einhvern veginn þannig að margir hér inni eru viðkvæmir fyrir því þegar gagnrýni berst erlendis frá. Eftirlit ÖSE með kosningum, menn hafa gert mikið úr því reglulega þegar athugasemdir hafa komið þaðan. En nú allt í einu þegar á að velja út þetta eina atriði sem á að leyfa unglingum og börnum að njóta, ekki alls hins, bara þessa eina atriðis, þá skipta sjónarmið dómsmálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, ÖSE eða hverra þeirra sem um málið fjalla ekki nokkru máli. Það er auðvitað ekki heil brú í þessari nálgun. Burt séð frá því og ég ítreka að ég held að efnislegt markmið frumvarpsins sé prýðilegt. En það þarf að gerast í víðara samhengi.

Það lítur afskaplega illa út, svo vægt sé til orða tekið, ef við finnum okkur á þeirri braut að ætla að afgreiða þetta mál í miklum ágreiningi. Þetta mál er þess eðlis að það verður eftir því tekið. Það er eitthvað markmið sem menn eru að uppfylla sem er ekki hægt að tala um ef menn eru tilbúnir að láta slíkar gusur yfir sig ganga.

Nú hefur dómsmálaráðuneytið haft miklar áhyggjur af framkvæmdinni og kynningu og þar fram eftir götunum og sömu sjónarmið komu fram hjá fulltrúum menntamálaráðuneytisins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem sendir inn mjög vel ígrundaða umsögn. Það er ekkert mjög langt síðan að kosningar á Íslandi voru ógiltar. Það eru innan við tíu ár. Þá voru bara heilar kosningar til svokallaðs stjórnlagaþings ógiltar. Við eigum ekki að vera að taka svona áhættu með því að gera þessar breytingar núna. Þó að hv. þm. Þorsteinn Víglundsson vilji meina að þetta séu smávægilegar breytingar þá er það engu að síður þannig að hjá þessum aðilum sem ég hef vitnað til núna, dómsmálaráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, er talað um þetta eins og það er, sem grundvallarbreytingu. Og ef kappsmálið væri ekki að ná bara þessum eina rétti fram fyrir þessar kosningar sem eru eftir nokkrar vikur, að unglingarnir og börnin fái bara kosningarréttinn, ekkert annað, væri sáraeinfalt fyrir þá sem tala fyrir þessu frumvarpi að samþykkja þær breytingartillögur sem greidd voru atkvæði um í gær, og sambærileg tillaga liggur fyrir núna, þar sem gildistöku er frestað. Þá fá menn tilhlýðilegan tíma, forsvaranlegan, til að undirbúa málið fyrir kosningar að fjórum árum liðnum. Ef það væru einhver heilindi í þessari vinnu myndu menn taka svona tillögu fagnandi og segja: Við erum ánægðir með þessa nálgun, það er stór hópur þingmanna sammála meginmarkmiðinu og nú skulum við gera þetta vel og undirbúa þetta. En við erum ekki á þessum stað. Það vita það allir sem sitja hér inni. Þetta snýst því miður ekkert um að gera þetta vel eða rétt. Þetta snýst bara um að keyra þetta í gegn með öllum tiltækum ráðum svo að þessi 9.000 atkvæði komi inn í púllíuna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar eftir nokkrar vikur.

Þetta er auðvitað nálgun og verklag sem við sem hér störfum verðum að rísa yfir. Gerum þetta almennilega og nálgumst málin þannig að sómi verði að.

Þetta er fyrsta ræða mín í þessu máli. Ég gæti þurft að koma hingað aftur upp. En mig langaði að nefna nokkur atriði úr umsögnum, fyrst ég hef svolítinn tíma í þessari ræðu. Mig langaði til að koma inn á það sem fulltrúar dómsmálaráðuneytis segja í umsögn sinni. Dómsmálaráðuneytið segir þar sem verið er að tala um frumvarpið sem nú liggur fyrir, með leyfi forseta, að það verði að fara vel yfir lögin þannig að „ljóst sé að breytingin á kosningaaldri kalli ekki á frekari breytingar“.

Það hefur einhver skoðun farið fram en ég er þess fullviss að hún er ekki eins ítarleg og hún þyrfti að vera og með þeim hætti sem menn myndu framkvæma ef þeir hefðu tíma. Fulltrúar dómsmálaráðuneytisins segja sömuleiðis, með leyfi forseta:

„Framkvæmd sveitarstjórnarkosninga er fyrst og fremst á sveitarstjórnarstiginu þannig að hitinn og þunginn af framkvæmd kosninganna lendir þar. Grundvallarbreytingar“ — ég ítreka, grundvallarbreytingar — „á lögum svo skömmu fyrir kosningar skapa hættu á að mistök verði í framkvæmd og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar á gildi kosninga. Þá hefur Samband íslenskra sveitarfélaga einnig bent á í umsögn sinni um málið að óvarlegt sé að gera grundvallarbreytingar á kosningalöggjöf svo skömmu fyrir kosningar. Þá er almennt talið á alþjóðavettvangi að óvarlegt sé að breyta kosningalöggjöf skömmu fyrir kosningar.“

Það hljómar eins og ég sé að endurtaka mig en það er auðvitað af því að allar þær stofnanir og öll þau samtök sem hafa hvað mestan þunga í þessum efnum eru sömu skoðunar, að hér sé um grundvallarreglubreytingu að ræða og að það sé ótækt að keyra þetta í gegn með svona stuttum fyrirvara. Í þessu samhengi, bara við þessa málsgrein, vil ég aftur minna á það sem ég sagði rétt áðan að það eru innan við tíu ár síðan kosningar á landsvísu voru ógiltar hér á landi vegna mistaka í framkvæmd.

Þetta spilar með beinum hætti inn í þau sjónarmið sem ÖSE setur fram en í bókun Sambands íslenskra sveitarfélaga er bent á leiðbeiningar frá Evrópuráðinu þar sem fram kemur, með leyfi forseta, „að stöðugleiki er mikilvægur varðandi kosningalöggjöf“ og stjórn sambandsins telji að „stjórnvöld og Alþingi eigi að starfa út frá þeirri meginreglu að ekki séu gerðar meiri háttar breytingar á kosningalögum þegar minna en eitt ár er til kosninga“.

Eitt ár. Það eru rétt rúmir tveir mánuðir núna til kosninga. ÖSE heldur því fram að menn eigi bara alls ekki að hreyfa sig neitt ef það er minna en eitt ár til kosninga. Hérna ætla menn að fara í grundvallarbreytingu. Þetta gengur auðvitað ekki. Við hljótum öll að átta okkur á því.

Að endingu vil ég ítreka að þetta er fyrsta ræðan mín í þessu máli og það er margt sem ég hef ekki haft tækifæri til að koma inn á í henni. Nú liggur meginskoðun þingmannsins sem hér stendur fyrir. Ég hvet þingheim til að nálgast mál með þeim hætti að minnka asann, gera þetta vel og þannig að lógískt samhengi og samræmi séu í hlutunum.