kosningar til sveitarstjórna.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ágætu ræðu. Ég ætla fyrst að segja að ef ég léti hagsmuni flokks míns ráða för ætti ég að vera helsti talsmaður þess að þetta frumvarp yrði afgreitt og það með hraði, því að ég er sannfærður um að Sjálfstæðisflokkurinn á töluvert mikið fylgi og meira meðal yngri kjósenda, þ.e. 16–18 ára, en flestallir aðrir flokkar í þessum þingsal. (Gripið fram í.) — Nei, ég held að það sé rangt hjá þér, hv. þingmaður. En gefðu mér aðeins tíma til að eiga orðastað við ræðumann.
Ég er ekki alveg klár á því hvort hv. þingmaður er almennt fylgjandi því að við ákveðum að kosningaaldur skuli vera 16 ár, ekki bara í sveitarstjórnarkosningum heldur í alþingiskosningum, í forsetakosningum og þjóðaratkvæðagreiðslum. Því að það vil ég gera. Og um leið vil ég færa sjálfræðisaldurinn niður. En það eru ýmsir fingurbrjótar þar sem við þurfum að fara í gegnum, ég geri mér grein fyrir því. Og auðvitað kjörgengi.
Ég tel eðlilegt og sanngjörn krafa þessara ungmenna sem eru að fara að taka við af okkur, sem eru 16 ára í dag, að þau eigi þann skýlausa rétt að geta boðið sig fram til sveitarstjórna, til Alþingis og þess vegna líka til embættis forseta lýðveldisins. Er hv. þingmaður með mér í þessari för?