kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegur forseti. Svo ég svari því sem hv. þm. Óli Björn Kárason endaði á að spyrja um held ég að það sé sérstaklega vondur bragur á því að afgreiða mál sem þetta í miklum ágreiningi. Ég er ekkert viðkvæmur fyrir því að afgreiða ýmis mál í ágreiningi. Ég er meira að segja þeirrar skoðunar að ágreiningur sé góður á stað eins og hérna. Menn eiga að takast á um ólíkar skoðanir.
En svo ég komi inn á það sem hv. þm. Óli Björn Kárason byrjaði á þá er í mínum huga augljóst að fjárræði og sjálfræði og fleiri atriði þurfa að fylgja með, sé gengið til þess verks að hnika til aldursviðmiðum.
Hv. þingmaður spurði hvort Miðflokkurinn hefði mótað stefnu í þeim málum er snúa að borgaralegum réttindum. Eins og hv. þingmaður þekkir erum við ungt afl og þetta er í vinnslu hjá okkur, en formleg stefna hjá okkur hefur ekki verið mótuð í þessum efnum.
Það kemur mér ekki á óvart að þessi skoðanakönnun hafi birst í Skessuhorni enda eru íbúar í Norðvesturkjördæmi skynsamlega þenkjandi, eins og hv. þm. Óli Björn Kárason veit.
Við verðum á sama tíma að passa okkur á að sveiflast ekki eftir skoðanakönnunum. Við höfum farið allt of oft út af sporinu í slíkum eltingarleik í gegnum árin.
Ég var búinn að fara yfir það sem snýr að stefnumörkun Miðflokksins. Kjörgengið þarf að vera með. En af því að þetta er nú seinna andsvar, bara til að ramma það inn, þá er það skoðun mín að þetta þurfi að skoðast sem ein heild.
Ég hef eflaust gleymt einhverjum af þeim borgaralegu réttindum sem um gæti verið að ræða, en þarna þarf að vera lógískt samhengi.