148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[18:07]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hlustaði einmitt á ræðu hv. þingmanns. Hann talaði um áhyggjur og, já, að það vantaði að fræða hina og þessa um hitt og þetta. En hvað er þetta hitt og þetta sem þarf að fræða um? Hvar eru efnislegu rökin fyrir því hvað þurfi að gera? Það stendur ekki í umsögnunum. Það er bara sagt: Þetta er ekki nægur tími. Það er ekki sagt nákvæmlega af hverju. Það er engin aðgerðaáætlun um hvað komi til með að bætast við sem ábyrgð hjá kjörstjórnum eða sveitarfélögum annað en að taka bara við kjörskránum í hendurnar og þeim sagt að þarna sé ný kennitala á listanum: Ókei, gerðu svo vel, kjóstu.

Um fræðsluna sem á að koma hinum megin að, til kjósandans, um réttinn sem hann hefur til að tjá þessa skoðun sína sem er atkvæðið, er menntamálaráðuneytið búið að segja að það mál verði lagað. Grunnskólinn er þegar búinn að sjá um lýðræðismenntunina (Forseti hringir.) sem slíka. Það þarf bara að uppfræða þau um að þau hafi núna þennan atkvæðisrétt. Þetta er ekki það flókið. Við lifum á internetöldinni og síðast þegar við gerðum þetta, árið 1986, voru sex vikur til kosninga. Þá var ekkert internet einu sinni til að dreifa upplýsingum eins hratt og við getum núna.