kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvar hans aftur. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni, það er ekkert efnislegt atriði sem ég sé með þessa lagabreytingu sem kemur til með (Gripið fram í.) að gera þetta ómögulegt. Þetta er framkvæmdaratriði sem ég tel að sé of skammur tími til að undirbúa. (BLG: Af hverju?) Það er það sem ég sagði í ræðu minni áðan.
Varðandi fræðsluna er það auðvitað allt annað mál. Ég dáist að hæstv. menntamálaráðherra fyrir að lýsa því yfir, ég held að það hafi verið í gær, að hún ætlaði að uppfræða þessi ungmenni á þeim tíma sem til stefnu er, vika í utankjörfundaratkvæðagreiðslu og níu vikur í kosningar. Ég dáist að því. (Gripið fram í.) Þriðjungur ungra drengja er ólæs!