kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur andsvarið. Ég tel að fara þurfi í breytingar á kosningalöggjöfinni í heild sinni. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt út af umræðunni og vegna þess að ég skynja að mjög margir á þingi eru fylgjandi því því að lækka kosningaaldur. Ég er líka fylgjandi því en tel að það ætti að gerast í meiri sátt, með meiri aðdraganda, og taka þá líka aðra hluti inn í það. En það er einn galli á gjöf Njarðar. Ef maður ætlar að lækka kosningaaldur í alþingiskosningum þarf stjórnarskrárbreytingu til. Hún er miklu erfiðari og flóknari, eins og við þekkjum öll. Það þarf að fara í gegnum kosningar og samþykki næsta þings þar á eftir áður en það tekur gildi. En auðvitað á þetta að vera samræmt, bæði á sveitarstjórnarstigi og í landsmálunum. Auðvitað á að vera sami kosningaaldur. Ég leit á þetta sem góða (Forseti hringir.) tilraun og upphaf að því að færa kosningaaldur niður þegar málið kom fram í desember.