kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni kærlega fyrir andsvarið. Ég verð að segja að mér er þó nokkuð létt að hv. þingmaður hafi ekki getað þulið upp langa runu mála þar sem athugasemdum sem þessum, frá aðilum sem þessum, er ýtt til hliðar. En það er eitt atriði hvað varðar mögulega framtíðarskoðun á kosningaumgjörðinni sem mig langar til að spyrja um skoðun hv. þingmanns á. Ég hef verið sammála því að mestu leyti sem hann hefur sagt varðandi nauðsyn þess að samræmi sé innan umhverfisins sem verið er að fjalla um. En mig langar í því samhengi að spyrja hv. þingmann um 35 ára kjörgengisviðmiðið varðandi framboð til forseta Íslands, hvaða skoðun hann hefur á því.