148. löggjafarþing — 45. fundur,  9. apr. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 489, um störf þingmanna á vegum framkvæmdarvaldsins, frá Birni Leví Gunnarssyni, og á þskj. 464, um þróunar- og mannúðaraðstoð, frá Bryndísi Haraldsdóttur.

Borist hafa tvö bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 644, um rafmyntir, frá Bryndísi Haraldsdóttur, og á þskj. 647, um kolefnisgjald og mótvægisaðgerðir gegn kolefnislosun, frá Vilhjálmi Árnasyni.

Borist hefur bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 336, um matvælaframleiðslu á Íslandi, frá Þórarni Inga Péturssyni.

Loks hefur borist bréf frá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 367, um hleðslustöðvar fyrir rafbíla, frá Guðmundi Inga Kristinssyni.