148. löggjafarþing — 45. fundur,  9. apr. 2018.

staðan í ljósmæðradeilunni.

[15:13]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ef ég byrja á að svara því sem hv. þingmaður velti hér upp varðandi starfs- og kjaraumhverfi þessarar stéttar þá er ég þeirrar skoðunar að meta eigi vinnuframlag ljósmæðra til launa og til samfélagslegrar virðingar. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að vinnuframlag og starf ljósmæðra væri sérstaklega mikilvægt. Þarna er um að ræða kvennastétt sem sinnir konum á gríðarlega dýrmætum og mikilvægum tíma í lífi þeirra og mér finnst að það eigi að meta að verðleikum.

Hv. þingmaður nefndi að sú staða sem upp er komin ylli mögulega ugg og óöryggi hjá fjölskyldum. Ég hef verið fullvissuð um það af forstjóra Landspítalans að engu öryggi sé stefnt í uppnám á Landspítalanum enda umgangast ljósmæður vinnustað sinn af fullri ábyrgð. Þannig er engin ástæða til þess, hvorki hjá hv. þingmanni né öðrum, að kynda undir ugg eða óöryggi hjá foreldrum.

Ég hef beitt mér í þessu máli í gegnum forstjóra Landspítalans til að freista þess að gera það sem hægt er þar til þess að bæta starfsumhverfi og mögulega vaktaumhverfi þessarar mikilvægu stéttar. Það hefur verið gert og því hefur verið spilað inn í þær kjaraviðræður sem nú eru í gangi. Ég vonast til þess að það verði til þess að hjálpa til við að leysa þessa viðkvæmu deilu. Eins og væntanlega landsmenn allir vonast ég til þess að fundurinn 16. apríl verði árangursríkur.