148. löggjafarþing — 45. fundur,  9. apr. 2018.

starfsemi Airbnb á Íslandi.

[15:25]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Sá sem hér stendur spurði fjóra ráðherra Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma um hugsanlegar aðgerðir til að koma böndum á starfsemi Airbnb á höfuðborgarsvæðinu og á Íslandi yfirleitt. Svörin voru fátækleg og lítið hefur gerst.

Ég veit að sýslumaður hefur gert einhverja gangskör að því að reyna að fá fleiri af þessum fyrirtækjum skráð og einhverjir tugir hafa verið skráðir af þeim þremur þúsundum sem eru í Reykjavík einni. Þetta skráningarleysi verður til þess að engum opinberum gjöldum er skilað og það skekkir samkeppni við hótelhaldara sem standa í skilum. Það sem er líka alvarlegt er að á fundi sem var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur um daginn kom fram í máli lögreglufulltrúa sem var þar að lögreglan telur að Airbnb-húsnæði í Reykjavík sé einn aðalvettvangur vændis og mansals í Reykjavík.

Ég verð í þessu samhengi öllu að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hyggist gera gangskör að því að þessi starfsemi verði skráð þannig að hún verði örugg, skili opinberum gjöldum, verði ekki vettvangur glæpa og sé ekki í ólöglegri samkeppni eða samkeppni sem er skökk miðað við aðra sem eru í þessum geira. Ég lagði til á sínum tíma við hina ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem ég hef rætt þetta mál við að lögreglan fengi einfaldlega eitthvert dálítið fé til að banka upp á hjá þessum aðilum og krefja þá um skráningu. Ég er næstum viss um að það væri mjög fljótlegt að sópa þessu máli þannig upp.

Nú langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað hyggst ráðherrann gera?