hjúkrunar- og dvalarrými í Stykkishólmi.
Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherra fyrir þetta svar. Það er ánægjulegt að heyra að málið sé komið á þessa hreyfingu. Erum við að tala um að vinna hefjist á þessu ári, á komandi hausti? Ég var að leita í fjármálaáætluninni en gat ekki séð neitt sem var sérstaklega merkt þessu verkefni en það er gleðilegt ef svo er.
Eins og ráðherrann kom inn á er þetta mál búið að vera í gangi síðan 2012. Eldri borgarar í Stykkishólmi búa í 12–14 m² kytrum sem eru á undanþágu, þar er músagangur og ekki mönnum bjóðandi. Það er því gleðilegt að heyra að málið sé komið á rekspöl. Þetta er búið að vera mikil og löng þrautaganga og þakka ég fyrir mig.