dreifing ferðamanna um landið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, svörin og öllum þeim hv. þingmönnum sem lögðu ýmislegt til málanna. Áskoranir við dreifingu ferðamanna eru vissulega margar og hafa þær verið dregnar vel fram hér og verða vonandi okkur öllum ásamt hæstv. ráðherra brýning til dáða.
Ég ætla að byrja á að koma inn á það að fókusinn eða áherslan í þessari umræðu var á flugþróunarsjóð sem hefur sérstaka tengingu við millilandaflugvellina á Egilsstöðum og Akureyri. Þess vegna hefur áhersla mín snúið þar að. Ég fagna svörum ráðherra varðandi framhald á starfrækslu þess sjóðs og einmitt að alveg skýrt er að sá sjóður heyrir undir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Það liggur hins vegar fyrir að auka þarf sýnileika sjóðsins af hálfu annarra hagaðila en markaðsstofa landshlutanna, þ.e. ráðuneytið, Isavia og Íslandsstofa þurfa að taka að sér að kynna sjóðinn og hlutverk hans til að flugfélög viti einfaldlega af honum.
Það hefur sýnt sig, eins og kom vel fram í máli hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar, að sjóðurinn er að skila miklum árangri og t.d. í vetur hefur orðið 30–40% aukning á nýtingu gistinga á Norðurlandi samhliða beinu flugi þangað. Markaðsstofur landshlutanna búa við lítinn fyrirsjáanleika. Þannig liggur það fyrir að nú í framhaldi af vinnu við áfangastaðaáætlanir sem unnar eru í landshlutunum er ekki búið að tryggja fjármagn til að fylgja (Forseti hringir.) markaðssetningu eftir. Það er alveg efni í aðra umræðu. Ég held að við ættum bara að biðja um hana strax á eftir því að margt er ósagt. (Forseti hringir.) En dreifing ferðamanna um landið með skynsamlegum hætti (Forseti hringir.) mun auka hagvöxt í landinu.