einkaleyfi og nýsköpunarvirkni.
Virðulegur forseti. Í febrúar síðastliðnum hélt Einkaleyfastofa, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og fleiri aðilar málþing um hugverkarétt í jarðvarmageiranum. Tilgangur málþingsins var að vekja fyrirtæki í jarðvarma og orkuiðnaði til umhugsunar um mikilvægi þekkingar og hugvits og verndunar hugverka fyrir samkeppnishæfni iðnaðarins. Það kom fram í máli forstjóra Einkaleyfastofu að Íslendingar eiga engin einkaleyfi á aðferðum til að nýta jarðvarma og eru ekki með nein slík leyfi í vinnslu. Hins vegar eru 45 erlendar umsóknir í vinnslu og í gildi eru um 16 einkaleyfi á þessu sviði sem eru virk hér á landi. Þau eru öll í eigu erlendra aðila.
Þessar fréttir ollu mér verulegum áhyggjum enda er ég ein af þeim sem telja nýsköpun forsendu áframhaldandi hagvaxtar. Ég veit að einkaleyfi eru ekki algildur mælikvarði á nýsköpunarvirkni, en þau eru forsenda nýsköpunar og fjárfestingar á mörgum sviðum.
Umræða um skort á því að íslenskir aðilar sæki um einkaleyfi er ekki ný af nálinni og bent hefur verið á það í erlendum úttektum um rannsóknar- og nýsköpunarumhverfi á Íslandi að hér sé um veikan hlekk að ræða. Margt er hér mjög vel gert og almennt stöndum við ágætlega þegar kemur að nýsköpun. Stuðningsumhverfi nýsköpunar hér er gott og umgjörð. En þegar kemur að fjölda einkaleyfa þá lítur út fyrir að þörf sé á úrbótum enda er fjöldi einkaleyfa einn af mælikvörðum þegar metin er samkeppnishæfni landsins.
Þessu til viðbótar verð ég að bæta því við að þekking og reynsla okkar Íslendinga af jarðhita er og hefur verið útflutningsvara og jafnvel hluti af okkar utanríkisstefnu og hluti af framlagi okkar til þróunaraðstoðar þar sem við rekum Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Í ljósi þessa hef ég beint fyrirspurn til hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og ég spyr þriggja spurninga:
Hefur ráðherra áhyggjur af þeirri þróun að Íslendingar eigi engin einkaleyfi á sviði jarðvarmavinnslu á meðan erlendir aðilar hafa skráð töluvert af slíkum einkaleyfum hér á landi?
Hefur ríkisstjórnin eða ráðherra það markmið að fjölga íslenskum einkaleyfum til að auka enn frekar samkeppnishæfni landsins?
Hvaða aðferðum beitir hið opinbera til að hvetja til þess að íslenskir vísindamenn og hugverkamenn verndi hugverk sín með því að sækja um einkaleyfi?