lög um félagasamtök til almannaheilla.
Virðulegi forseti. Fyrirspurnin sem ég legg fram gengur út á að kanna hvort ráðherra hyggist nýta á einhvern hátt þá vinnu sem unnin var á árunum 2008–2015 til undirbúnings löggjafar um frjáls félagasamtök og sjálfseignarstofnanir sem starfa að almannaheillum. Sú vinna leiddi til þess að lagt var fram frumvarp til laga um félagasamtök til almannaheilla á 145. löggjafarþingi á árinu 2016. Mælt var fyrir frumvarpinu og umsagnir bárust en ekki vannst tími til að vinna með frumvarpið í efnahags- og viðskiptanefnd.
Vinnan á árinu 2008 hófst að frumkvæði þeirra sem starfa að almannaheillum, þ.e. Almannaheilla, samtaka þriðja geirans. Á því sviði vinnur fjöldi fólks óeigingjarnt starf í fjölbreyttum samtökum. Félagasamtök og sjálfseignarstofnanir vinna gríðarlega mikilvægt starf í okkar samfélagi. Mörg dæmi eru um að stjórnvöld feli slíkum félagasamtökum eða stofnunum að leysa tiltekin samfélagsleg verkefni og styðja þá við starf þeirra með styrkjum, ívilnunum eða samningum um afmörkuð verkefni.
Með frumvarpinu var ekki stefnt að því að setja reglur um öll frjáls félög heldur einungis hin skilgreindu almannaheillasamtök þar sem félagasamtök til almannaheilla yrðu aðgreind frá öðrum samtökum.
Það hafa mörgum sem komu að undirbúningnum orðið það vonbrigði að ekkert hafi heyrst af þessu máli frá haustinu 2016. Á hinn bóginn hef ég fengið ábendingar um að með frumvarpinu hafi verið reynt að leysa vanda sem raunverulega hafi ekki verið til staðar. Í öllu falli tel ég eðlilegt að skýrt lagaumhverfi sé til staðar sem grundvöllur að samstarfi stjórnvalda og almannaheillasamtaka þannig að til staðar séu rammar og viðmið fyrir stjórnvöld til að beita þegar stuðningur er veittur eða samið um lausn á tilteknum samfélagslegum verkefnum. Það ætti að auka gagnsæi við ráðstöfun á almannafé og auðvelda þeim sem starfa að almannaheillum að átta sig á og uppfylla þær kröfur sem til þeirra væru gerðar.
Ég velti því fyrir mér hvort hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hafi kynnt sér alla þá vinnu sem þarna lá til grundvallar og mótað sér afstöðu varðandi þörf fyrir skýrari lagaramma á þessu sviði og áframhald þeirrar vinnu sem nú hefur staðið yfir með hléum í tíu ár. Þess vegna spyr ég, í fyrsta lagi: Telur ráðherra þörf á breytingum á lagaumhverfi félagasamtaka til almannaheilla til að skjóta traustari stoðum undir starfsemi þeirra? Ef svo er, hyggst ráðherra leggja fram frumvarp til slíkra breytinga á þessu ári? Og í öðru lagi: Hyggst ráðherra leggja fram frumvarp til heildarlaga um félagasamtök til almannaheilla á kjörtímabilinu?