148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

störf þingsins.

[13:37]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég legg til að við þingmenn förum að horfast í augu við þann harmleik og þann skaða sem bannstefnan í vímuefnamálum hefur leitt af sér. Er ekki orðið tímabært að hætta að koma fram við fólk sem á við fíkniefnavanda að stríða sem glæpamenn? Andstæða fíknar er ekki edrúmennska heldur getan til að mynda tengsl. Fíkn er ekki afleiðing ánægjulegra áhrifa vímuefna á notandann heldur vangetu notandans til að mynda heilbrigð tengsl við fólkið í kringum sig og sjálft sig. Með öðrum orðum: Fíkn er ekki vímuefnavandamál í sjálfu sér heldur félagslegt vandamál.

Með því að skilgreina og í raun skilja fíknivanda sem félagslegt vandamál og heilbrigðismál hlífum við m.a. börnum okkar fyrir þeim fordómum sem verða til vegna vanda þeirra. Fordómar eru oftast ómeðvitaðir og seytla inn í hugsunarhátt fólks og lita alla framkomu og viðbrögð við aðstæðum þessa viðkvæma hóps fólks í samfélaginu. En ekki bara það heldur litar það upplifun einstaklingsins á sjálfum sér. Fólk í fíknivanda upplifir sig oft utangátta, sem byrði á fjölskyldu sinni og samfélaginu og aftengir sig þar af leiðandi í síauknum mæli frá ástvinum sínum sem eykur á vandann. Þetta er vítahringur sem okkur ber að stoppa. Að hjálpa fólki að þróa heilbrigð mannleg tengsl sem hluta af bata og lækningu þess er ekki auðvelt verkefni. Það krefst tíma, fyrirhafnar, fjármagns og stuðningskerfis sem er grundvallað á trausti og samkennd.

Sú nálgun að ætla að reyna að fjarlægja óæskileg vímuefni úr samfélaginu mun ekki binda enda á fíknivandamálið vegna þess að hún forðast dýpra vandamálið í samfélaginu. Það er til önnur leið. Við getum byggt upp kerfi sem er hannað til að hjálpa fíklum að mynda heilbrigð tengsl við umheiminn og þannig hjálpað þeim að segja skilið við fíkn sína.

Kæri þingheimur. Ég legg til að við sameinumst um að tækla fíknivandann með samkennd og samúð en ekki fordómum og refsingu.