148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil sannarlega byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir þessa frábæru tölu sína. Það er alveg satt, ég gæti ekki verið meira sammála. Við eigum að afglæpavæða fíknina og hjálpa frekar fíklunum okkar heldur en að refsa þeim fyrir að vera með þennan ömurlega sjúkdóm sem fíknivandinn er.

Ég ætla að tala um annað. Á þessari stundu stendur hópur fólks fyrir utan velferðarráðuneytið í þöglum mótmælum vegna þess að það á að leggja niður Hugarafl. Hugarafl eru samtök til að hjálpa fólki sem hefur átt við geðrænan vanda að stríða. Ég hef ekki betur getað séð í gegnum tíðina en að geðvandi á Íslandi hafi verið fótum troðinn og lítilsvirtur af þeim ráðamönnum sem hefðu hvað helst átt að taka utan um málið og hjálpa fólki sem þarf á hjálpinni að halda.

Í fimmtán ár hefur Hugarafl átt í góðri samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en nú á að loka öllum dyrum og 800 einstaklingar sem hafa notið þessarar þjónustu vita ekkert hvað um þá verður. Þessi þjónusta hefur hins vegar reynst vel.

Er það svo, virðulegi forseti, að ef eitthvað reynist vel þá þurfi samt að búa til eitthvað nýtt? Það þurfi að leggja það niður og gera það einhvern veginn öðruvísi? Er það til þess að skapa óöryggi þeirra sem hafa þurft á þjónustunni að halda? Ég get ekki skilið tilganginn með því að taka það sem vel er gert og koma því þannig fyrir að menn vita ekkert hvað í rauninni kemur út úr því í lokin.

Þannig að ég segi bara: Sveiattan að vera að leggja niður það sem fólkið þarf á að halda. Við eigum frekar að efla það og styrkja. Geðheilbrigðismálin ættu sannarlega að vera langtum framar í forgangsröðuninni en raun ber vitni á þessu háa Alþingi.