148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs um störf þingsins vegna frumvarps um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, um strandveiðar, frá atvinnuveganefnd sem mælt verður fyrir síðar í dag. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi strandveiða. Horfið verði frá því að skipta heildarafla til strandveiða á svæðin fjögur, A, B, C og D, og í stað þess verði sameiginlegur pottur fyrir öll svæði við veiðar stöðvaðar samtímis á öllum svæðum fari veiðimagn umfram viðmiðun. Mánaðarlegar takmarkanir eru þannig að hver bátur hefur heimild til að nýta 12 daga af þeim sem ákveðnir eru til veiðanna frá mánudegi til fimmtudags utan þeirra daga sem almennt teljast frídagar.

Hugsunin með þessu er að tryggja meira öryggi í útgerð og minnka þær ólympísku veiðar að menn rói í vondum veðrum heldur hafi þeir sína 12 daga. Ef frumvarpið verður að lögum er það hugsað til tilraunar í sumar og verður endurskoðað eftir það.

Viðbrögð við frumvarpinu eru misjöfn á öllum svæðum, nema svæði A. Frá hinum svæðunum hafa komið mótmæli.

Mig langar, með leyfi forseta, að vitna hér í ályktun frá Landssambandi smábátaeigenda, en þar er sagt:

„Það er afar jákvætt fyrir framþróun strandveiða að hægt verði að velja daga. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að veiðidagar til strandveiða árið 2018 verði 48, skipt jafnt á strandveiðimánuðina maí, júní, júlí, ágúst.

Stjórn LS mótmælir þó ákvæði frumvarpsins um heimild Fiskistofu til að stöðva veiðar stefni heildarafli í að fara umfram heildaraflaviðmiðun. Aðstæður á hinum 4 veiðisvæðum strandveiða eru mjög mismunandi hvað fiskigengd snertir.“

Mig langar að taka það fram í (Forseti hringir.) lokin að t.d. á stað eins og Norðurfirði á Ströndum (Forseti hringir.) myndi bátum fækka mikið verði þetta (Forseti hringir.) frumvarp að lögum óbreytt. Er það miður þar sem strandveiðar eru m.a. hugsaðar sem (Forseti hringir.) byggðafestukerfi.