148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langar að lesa fyrir þingheim grein 6.3 úr siðareglum ráðherra, með leyfi forseta:

„Ráðherra leynir ekki upplýsingum sem varða almannahag nema lög bjóði eða almannahagsmunir krefjist þess að öðru leyti. Ráðherra ber að hafa frumkvæði að birtingu slíkra upplýsinga sé hún í almannaþágu.“

Í kjölfarið vil ég vekja athygli á svari sem ég fékk frá fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn minni um birtingu gagna þar sem ég spurði:

„Hvenær fór fram mat á því hvort efni skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum varðaði almannahag, sem bæri þá að birta samkvæmt siðareglum ráðherra?“

Svarið var, með leyfi forseta:

„Skýrsla um eignir Íslendinga á aflandssvæðum var unnin að frumkvæði Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Birting hennar var því algerlega án utanaðkomandi kvaða eða mats á því hvort þær ættu við samkvæmt siðareglum.“

Með öðrum orðum er verið að segja að ef ráðherra á frumkvæði að einhverju þurfi hann ekki að fara eftir siðareglum.

Ég get eiginlega ekki lagt nógu mikla áherslu á það hversu fáránlegt þetta svar er, að slíkt mat ætti ekki við hvort sem upplýsingar sem ráðherra hafði undir höndum vörðuðu almannahag eða ekki. Það skiptir ekki máli hvort ráðherra kallar eftir upplýsingum að eigin frumkvæði eða hvort Alþingi kallar eftir upplýsingunum. Ef þær varða almannahag á að sjálfsögðu að birta þær eins og segir í siðareglum ráðherra, að frumkvæði ráðherra, eins fljótt og hægt er.

Þetta tel ég mjög alvarlegt mál. Siðareglur ráðherra eru ekki léttvægar. Það er búið að reyna að koma þeim í gegn og í gagnið í mjög langan tíma og þær eru mjög góðar miðað við það sem ég hef lesið og þær athugasemdir sem hafa verið gerðar við þær. (Forseti hringir.) En það á að fara eftir þeim, það er ekki nóg að hafa þær, það þarf að fara eftir þeim. Þetta svar finnst mér svo mikil hneisa og vanvirðing gagnvart siðareglunum að ég skil ekki hvað fjármála- og efnahagsráðherra er að gera í þessu sæti almennt alla daga.