störf þingsins.
Herra forseti. Miðflokkurinn hefur verið óþreytandi í því að benda á hversu illa ríkisstjórnin hefur staðið sig í hagsmunagæslu ríkissjóðs í Arion banka málinu og enn berast fréttir af málefnum Arion banka. Nýjasta fréttin er sú að nú vilja vogunarsjóðirnir endurskoða forkaupsrétt ríkisins við opið útboð. Vogunarsjóðirnir hafa nú þegar náð sínu fyrsta stóra markmiði sem var að koma ríkinu út úr hluthafahópnum. Það tókst og því eru komnar forsendur fyrir næsta markmið. Næsta markmið er að breyta samstæðunni til að hámarka ábata vogunarsjóðanna. Í því felst að þeir munu greiða sem lægsta fjárhæð til ríkisins, þeir munu fara í aðgerðir sem miða allar að því að greiðsla til ríkisins verði sem lægst.
Í frétt á Vísi frá 4. apríl sl. kynna vogunarsjóðirnir sitt næsta markmið. Það gera þeir með því að segja að forkaupsréttur ríkisins valdi óvissu með skráningu á bankanum og því verði að afnema forkaupsréttinn. Þetta er mjög klókt, værum við vogunarsjóðir. Að fá forkaupsréttinn felldan niður er lokamarkmiðið í því að fá ríkissjóð alveg út úr myndinni. Hér hafa þeir fundið efnislega ástæðu til að endurskoða greiðslur til ríkisins og geta því komið fram með tillögu við ríkið sem þeir segja að sjálfsögðu að verði mjög sanngjörn.
Forkaupsréttur ríkisins er réttur sem hefur verðmæti og á að tryggja stöðu ríkisins, þar með talið hvaða aðilar koma í eigendahópinn og verða eigendur viðskiptabanka. Það er eðli forkaupsréttar.
Herra forseti. Nú ætla ég að koma með tillögu fyrir þessa duglausu ríkisstjórn. Hún er sú að nú ætti ríkið að biðja Kaupþing um að gera tillögu um hvaða greiðslu þeir vilja greiða til ríkisins fyrir að fá að falla frá forkaupsréttinum, svo verði önnur skilyrði óbreytt. Það versta sem gæti gerst fyrir plan vogunarsjóðanna er ef ríkissjóður ætti forkaupsrétt og myndi hóta að beita honum. Það þýddi að það yrði að greiða markaðsverð fyrir hlutina.