störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það hefur ansi margt verið sagt í dag sem mig langar að taka undir en sérstaklega langar mig að taka undir hvert orð í prýðilegri ræðu hv. þm. Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur. En yfir í allt annað. Ef talað er um gegnsæja stjórnsýslu skilja eiginlega allir hvað átt er við. Ef hins vegar er talað um opinn hugbúnað þá skilja fæstir hvað átt er við. Mig langar til að gera enn eina tilraunina, sem tölvunörd, til að reyna að útskýra það fyrirbæri.
Í raun og veru er hægt að kalla opinn hugbúnað gegnsæjan hugbúnað. Hugbúnaður er eitthvað sem við notum öll, alla vega langflest, í okkar daglega lífi og yfirvöld nota ofboðslega mikið. Þessi hugbúnaður fer meira og minna með allar upplýsingar í kerfinu. Mikið af þessum hugbúnaði, ef ekki meiri hluti hans, er lokað. Það þýðir að enginn getur séð hvernig hann virkar nema framleiðendurnir sjálfir. Opinn hugbúnaður er gegnsæismál.
Því er oft teflt fram sem spurningu um kostnað að það sé hægt að spara á því. Í fyrsta lagi er það ekki endilega tilfellið. Í öðru lagi er það aukaatriði. Aðalatriðið er að þegar við mótum okkur stefnu í hugbúnaði og meðhöndlun upplýsinga hjá ríkinu eigum við sjálfkrafa að spyrja: Er hugbúnaðurinn opinn? Alltaf þegar ríkið ætlar að kaupa sér hugbúnað eða framleiða hann eða kaupa einhverja sérlausn á það að spyrja: Verður hugbúnaðurinn opinn? Það er mikilvæg spurning af sömu ástæðu að það er mikilvægt að fjölmiðlar geti sent fyrirspurnir til yfirvalda og fengið svör. Það er jafn mikilvægt, sama lógíkin er í gangi.
Spurningin er: Getum við vitað hvernig hugbúnaður virkar? Ef hann er lokaður getum við það ekki. Ef hann er opinn getum við það.
Mig langar að nefna þetta vegna þess að ég rakst á það í fjármálaáætlun að fyrirhuguð eru kaup á hugbúnaði til umsýslu útlendingamála sem er eitt og sér gott að mínu mati. En það minnti mig á það að allt of oft sé ég að gegnsæi í hugbúnaðarmálum, og ég ítreka að hugbúnaður sér um allar upplýsingar, er einu og sér ekki tekið sem sjálfstæðu gildi. Mér finnst það miður. Ég hef hafið (Forseti hringir.) samningu á þingsályktunartillögu til að reyna að ráða bót á því og mun bjóða öllum þingmönnum að vera með á henni.