dagskrá fundarins.
Virðulegur forseti. Ég þarf aðeins að tala um það sem nýliði á þingi þessa vikuna að ég hef í fullri alvöru spurt samflokksfólk mitt hvort þetta sé eitthvert grín. Ég kom inn á mánudaginn og þá lá fyrir ein dagskrá. Í dag lá fyrir einhver allt önnur dagskrá. Svo fékk ég lista af málum fyrir daginn í dag, lista yfir 21 mál sem á að ræða hérna í dag.
Ég skil þetta ekki. Þetta var líka svona þegar ég kom hingað í janúar. Það virðist ekki vera hægt að skipuleggja Alþingi eins og ætti að teljast frekar eðlilegt fyrir þessa stofnun. Þið ættuð kannski að fá ykkur verkefnisstjóra eða eitthvað, ég veit það ekki. Skipulagsstjóra?