dagskrá fundarins.
Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en lýst yfir mikilli hamingju með þessa dagskrá. Það er bara fullt af málum allt í einu komið inn í þingið og ljóst að einhvers staðar hafa menn nú rankað við sér að stutt væri eftir af þinginu. Það eru um 14 þingdagar eftir. Má þá gera ráð fyrir að þetta séu öll málin sem munu bætast við? Það er alla vega ekki mikill tími til að mæla fyrir eða ná fleiri málum í gegnum þingið, þannig að við hljótum að vera komin nokkurn veginn með myndina af því hvað ríkisstjórnin ætlar að gera fyrir vorið, sem er nú ekki stórkostlegt. Við sjáum það að sjálfsögðu.
Fjármálaáætlun kom seint. Þingmál komu almennt seint frá ríkisstjórninni. Þar af leiðandi erum við í þessari stöðu núna. Við erum með fulla dagskrá. Við erum með 18 eða 21 mál á dagskrá fundarins í dag. Við vitum að við munum vinna fram eftir kvöldum þessa vikuna. Í næstu viku er búið að fjölga nefndadögum, þannig að tíminn líður býsna hratt frá okkur.
Ég velti hins vegar fyrir mér hvort hægt sé að fá það upplýst, svo menn geti skipulagt sig fram í tímann, frá hæstv. forseta eða forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar hvort búast megi við öðrum 18 málum (Forseti hringir.) tveimur dögum áður en við förum í kosningahlé?