148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

dagskrá fundarins.

[14:14]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Um leið og það er fagnaðarefni að ríkisstjórnin hafi vaknað af dvalanum vekur það spurningar um hvernig menn ætlist til að þingið vinni af vandvirkni þegar 18 málum er hrúgað inn á sama degi. Er 1. umr. um þingmál bara til skrauts? Ætlast menn virkilega til þess að þingið rúlli í gegnum öll þessi mál sem mörg eru mjög mikilvæg, grundvallarmál sem snúa t.d. að fjármálakerfi landsins, stimpli 1. umr. ólesna, klári hana og svo getum við þá reynt — reyndar er ekki mikill tími til stefnu — að vanda til verka í 2. umr.?

Þetta eru ekki boðleg vinnubrögð og það verður að gera verulegar athugasemdir við vinnubrögð forseta þingsins, að bjóða upp á þann farsa í dagskrárgerð að þingmenn fái hér nokkrar klukkustundir að kvöldi til að undirbúa sig fyrir umræðu um jafn mörg mál og hér er teflt fram.

Ég tek undir með öðrum, ég er ánægður með að sjá að ríkisstjórnin er vöknuð. Hún hefði hins vegar mátt gera það miklu fyrr.