148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

dagskrá fundarins.

[14:16]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla að gefnu tilefni að byrja á að hrósa hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir sína viðleitni til að auka fyrirsjáanleika í þeirri nefnd. Það er viðleitni sem vantar oft hér á bæ. Það virðist ákveðið mynstur að því meiri reynslu sem fólk hefur hér, því minna vandamál finnst því þetta vera.

Ástæðan er auðvitað sú að þegar fólk er orðið mjög reynslumikið hér á þingi getur það farið að gefa sér eitthvað, fær einhverja tilfinningu fyrir því hvernig málin eru að þróast. Það bara dugar ekki til. Þetta á að vera, eins og við segjum í mínum bransa, aulahelt. Það á að vera hægt að sjá þetta bara á vefnum svolítið inn í framtíðina, alla vega í hvaða röð við erum að fara að taka mál, í það minnsta. Ekki bara kl. sjö kvöldið áður.

Mig langar hins vegar líka að hrósa virðulegum forseta fyrir sína viðleitni til að hitta mig og annan hv. þingmann stjórnarmeirihlutans til að reyna að finna út úr því hvernig hægt sé að auka fyrirsjáanleikann. En mig langar að halda því til haga að þetta er ekkert mál. Það er ekkert mál, ef það eru einhverjar meginreglur að búa einfaldlega til lista. Það er ekkert mál að leysa þetta. Þetta er vandamál sem ef maður útskýrir það fyrir fólki utan Alþingis (Forseti hringir.) fólk trúir ekki. Það trúir þessu ekki og skilur ekki fyrr en það er komið hingað inn. (Forseti hringir.) Og hversu oft er það sem varamenn koma hingað inn og það fyrsta sem þeir gera er að kvarta undan nákvæmlega þessu? (Forseti hringir.)Er það ekki svolítið skrýtið? Er það ekki mjög skrýtið?