148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

dagskrá fundarins.

[14:17]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég er að eðlisfari bjartsýnn maður og held jafnvel að ég geti stundum verið hjálpsamur. Ég vil gjarnan leggja ríkisstjórninni lið í þeim vanda sem blasir við. Hún hefur lagt fram þingmálaskrá sem er allþykk bók. Síðan er farið að sneyðast um þingtímann, þingfundadaga. Ég held að nú væri ráð að ríkisstjórnin settist niður með mér og fleirum og tæki til við að forgangsraða málum sínum. Við getum sorterað út 15–20 mál og sameinast um að reyna að vinna þau almennilega og koma þeim í gegn, eftir atvikum með breytingum. Ég held að það sé algjörlega borin von að ætlast til þess að það verði nokkur bragur eða mynd á þingstörfum eða frumvörpunum ef það er enn staðföst skoðun og ætlan ríkisstjórnarinnar að leggja fram öll sín mál og ætlast til að þau verði afgreidd. (Forseti hringir.) Ég held að það væri mjög gott fyrir okkur öll — ég veit að við viljum öll að þingið afgreiði góð og nauðsynleg lagafrumvörp — að við hjálpuðumst að við að sortera. Ég er til.