dagskrá fundarins.
Virðulegur forseti. Ég kvarta ekki undan kvöldfundum eða næturfundum, um helgar eða á virkum dögum. Ég kvarta ekkert undan því að mæta í vinnuna. Það sem ég kvarta hins vegar undan er það að fá að vita kl. 19 hvernig morgundagurinn verður.
Er þetta gert til þess að hv. þingmenn, hvort sem er í stjórn eða stjórnarandstöðu, geti ekki kynnt sér málin með fullnægjandi hætti? Eru þetta vönduð vinnubrögð, herra forseti? Var það óljóst um hádegi í gær hvaða mál yrðu rædd hér í dag? Hvað með fjölmiðla sem eru fjórða valdið? Hvernig eiga þeir að geta fundið það á sér, líkt og við, hvaða mál verða rædd hér í dag?
Á heimasíðu þingsins er enn gert ráð fyrir nefndadögum fimmtudag og föstudag í þessari viku. Enn er gert ráð fyrir því að þingfundadagar séu í næstu viku. Það er ekki búið að uppfæra heimasíðuna og í gær stóð að utanríkisráðherra ætlaði að fara að ræða skýrslu sína. Þetta er það sem var á heimasíðunni (Forseti hringir.) þegar við skoðuðum hana rétt áður en við fórum heim í gærkvöldi. Mér finnst þetta ekki boðlegt, herra forseti.