dagskrá fundarins.
Herra forseti. Ég sakna þess að stjórnarliðar taki ekki frekari þátt í þessari gagnrýni. Eins og ég sagði áðan er um að ræða hagsmunamál alls þingheims. Það eru ekki síst stjórnarþingmenn og formenn fastanefnda sem þurfa að koma stjórnarfrumvörpum í gegnum þingið. Yfirleitt eru ráðherrarnir stikkfrí eftir 1. umr. Þess vegna skil ég ekki af hverju stjórnarþingmenn og formenn fastanefnda koma ekki og taka undir þessa gagnrýni, að málum á ekki að hrúga upp með þeim hætti sem hér er verið að gera.
Ég hef verið formaður fastanefndar. Ég sætti mig ekkert við það á þeim tíma að fá málin svona seint frá mínum ráðherra. Þess vegna vil ég brýna þá þingmenn sem eru formenn fastanefnda til að standa í lappirnar gagnvart sínum ráðherrum. Ég veit að þetta eru samherjar ykkar, en fyrr má nú vera. Alþingi er ekki stimpilstofnun framkvæmdarvaldsins. Ef við ætlum að komast upp úr þeim hjólförum verðum við einhvern tíma að breyta þessu. Og nú er lag að standa við þau stóru orð sem margir ráðherrar og núverandi forseti hafa svo sannarlega haft uppi hvað þetta varðar.