dagskrá fundarins.
Virðulegi forseti. Ég sá dagskrána fyrir daginn í dag í gær. Þá var ég að undirbúa mig undir nefndafund í allsherjar- og menntamálanefnd í morgun. Eftir þann fund fór ég strax og tók eitt mál sem fangaði athygli mína, mál nr. 11, skaðabótalög. Það er mál upp á 14 blaðsíður. Bara þetta eina mál er alveg nóg, annað hef ég ekki getað skoðað. Af hinum 19 málunum hef ég ekkert getað skoðað. Ég er ekki enn búinn að skoða það sem mig langar að ræða um sem greip mig strax, þ.e. skaðabótalögin. Ég skil ekki svona vinnubrögð. Ég held að svona vinnubrögð hljóti að vera til þess fallin að maður geti ekki kynnt sér hlutina almennilega. Hvernig á maður þá að greiða atkvæði um málin ef maður hefur ekki hugmynd um hvað þau snúast?