dagskrá fundarins.
Hæstv. forseti. Ég tek svo sannarlega undir það að hingað inn mega mál koma fyrr, það er gömul saga og ný. Ég hef hvatt ríkisstjórnir fram til þessa til að sýna það vinnulag og geri það líka núna.
Rétt þarf þó að vera rétt. Fyrir helgi fengu þingflokksformenn upplýsingar um það í grófum dráttum hvernig dagskrá þessarar viku ætti að vera. Við fengum upplýsingar um það hvaða mál frá hvaða ráðherrum yrðu á dagskrá. Þingflokksformönnum var í lófa lagið að óska eftir upplýsingum um það hvaða mál það væru og málin eru á dagskrá í dag, sýnist mér, eftir númeraröð eins langt og það nær og eins mikið og hægt er fara eftir því. Við skulum halda því til haga.
Strax að loknum fundi forsætisnefndar komu upplýsingar á vefinn um breytta dagskrá. Það lá fyrir um leið og þeim fundi var lokið. Við skulum tala um hlutina eins og þeir eru en auðvitað getum við alltaf bætt okkur og það eigum við að gera.