dagskrá fundarins.
Virðulegi forseti. Það má alveg til sanns vegar færa að það sé til bóta ef fyrir liggur með einhverjum fyrirvara hvaða tilteknu þingmál koma til 1. umr. í þinginu í þeirri viku sem er fram undan. En mér finnst menn ganga býsna langt í því að gagnrýna þá dagskrá sem liggur fyrir núna. Það liggur í augum uppi að ef dagurinn nýtist ekki til að ljúka umræðu um öll þessi mál þá bara bíða þau þar til nýr dagur rennur upp og við getum komið þeim á dagskrá síðar. Hér er um að ræða 1. umr. um mál að uppistöðu til, mál sem hafa verið á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, mál sem hafa beðið eftir framlagningu, þess að geta komist á dagskrá. Þau hafa legið hér frammi í hliðarherbergi fyrir þingmenn að kynna sér. Menn tala síðan um að það eigi að fara að útkljá mál (Forseti hringir.) í 1. umr. Málum þarf auðvitað að koma til nefnda þar sem vinnan fer fram.