148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

dagskrá fundarins.

[14:27]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það má vissulega taka undir að það er nauðsynlegt að forgangsraða málum, sérstaklega við þær aðstæður sem nú hafa skapast í þinginu. Auðvitað á þetta rætur að rekja til þess hvernig þingveturinn hefur verið frá því síðastliðið haust. Það skapar erfiðleika í ráðuneytunum við að leggja fram mál. Það gefur augaleið. Mér finnst hv. þm. Þorsteinn Víglundsson fljótur að gleyma. Hann var hér við sömu aðstæður í fyrra og ég man eftir að ég sat þá með honum í ríkisstjórn og hafði sérstaklega orð á því við hann að við þyrftum að vanda okkur við að vera ekki að dæla inn málum, ráðherrarnir, á síðustu metrunum. Þannig vann ég en ekki allir.

Hv. þm. Helga Vala Helgadóttir og fleiri hafa orð á að það sé enginn tími til að kynna sér málin. Ja, það var ekki mikið álag á þingmönnum í síðustu viku. Málin hafa legið hér inni í að minnsta kosti tíu daga fyrir þingmenn að kynna sér. Það er nú þannig að við setjum okkur ekki djúpt inn í öll mál heldur fyrst og fremst þau mál sem við erum að fjalla um í þeim nefndum (Forseti hringir.) sem heyra undir okkur, sem við eigum sæti í. Ég tek undir þau orð sem hér hafa fallið um að það þarf að efla virðingu og veg þingsins en þessi umræða er ekki þáttur í því.