dagskrá fundarins.
Virðulegi forseti. Það gerist alltaf þegar þetta er rætt að lítið er gert úr umkvörtunum. Það er alltaf látið eins og þær séu bara eitthvert bull. Fólk getur alveg haft misjafnar skoðanir á því hvernig hlutirnir eigi að vera. Það er náttúrlega bara eðlilegt og gott. Hins vegar er þetta alltaf sama línan frá meiri hlutanum. Ég segi alltaf vegna þess að það er alltaf sama línan. Hún er sú að það sé í raun ekkert mál að finna út úr þessu, þetta sé nú allt tiltölulega fyrirsjáanlegt. Hvers vegna er þá ekki hægt að setja það fyrr upp í svona lista? Bara raða á listann, einhvers konar forgangsröðun? Af hverju þarf að segja það á þingflokksformannafundi og þingflokksformaður síðan að koma því til sinna þingmanna? Af hverju þarf þessi einfaldi hlutur alltaf að vera svona ofboðslega flókinn í þessari tilteknu stofnun? Þetta er hvergi annars staðar vandamál. Þetta á ekkert að vera vandamál. Við eigum ekkert að þurfa að vera að rífast um þetta.