kostir og gallar aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég ætla að styðja þessa skýrslubeiðni. Mér var boðið að vera með á henni en ég þáði það ekki, með fullri virðingu, en greiði hiklaust atkvæði með henni og hlakka til að lesa skýrsluna. Mig langar bara að nefna fyrir þingheim til umhugsunar að ég sat einhvern tíma í þingsal á þarsíðasta kjörtímabili og við vorum að greiða atkvæði um frumvarp sem mér þótti mjög fallegt. Þá hugsaði ég með mér: Það er óhugsandi að við hefðum gert þetta að eigin frumkvæði. Mig langar til að þingmenn hafi í huga að hluti af því að vera í EES er að við fáum á færibandi haug af góðri löggjöf sem er búið að vinna vel, rökræða af mörgum þjóðum frá mörgum sjónarhornum. Hluti af því að vera í EES er að vera með lagaumhverfi sem kemur frá Evrópu. Mér finnst það vera hluti af kostunum við að vera í EES. Þessu er oft lýst sem galla en ég vil kalla það kost og mig langaði til að halda því til haga.