kostir og gallar aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég tek undir orð annarra þingmanna. Ég fagna þessari skýrslubeiðni mjög. Ég hef um langt árabil verið mjög áhyggjufullur yfir þeirri umræðu sem hefur verið um Evrópska efnahagssvæðið og samninginn þar að lútandi, ekki síst úr þessum sal hér. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá slíka úttekt, eins og Norðmenn gerðu sjálfir. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæði veitti íslensku atvinnulífi aðgang að 500 milljóna manna markaði sem heimamarkaður væri í stað þess 300.000 manna markaðar sem við störfum á í dag. Það hefur sennilega enginn alþjóðasamningur af hálfu Íslands verið gerður sem hefur skipt meira máli fyrir íslenskt atvinnulíf en samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið.
Hið sama á við um íslensk heimili. Það má ekki gleyma því að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið veitti okkur, íbúum þessa lands, réttinn til að starfa, búa, ferðast og læra á þessum sama 500 milljóna manna markaði. Ég er ekki í nokkrum vafa um að niðurstaða vandaðrar skýrslu sem þessarar verði (Forseti hringir.) á sama veg og var hjá Norðmönnum þar sem yfirgnæfandi jákvæð áhrif voru af samningum. Eins og aðrir þingmenn hvet ég til að hér verði vandað til verks, ekki kastað til höndunum heldur að við leggjum metnað í þessa skýrslugerð.