148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

kostir og gallar aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

478. mál
[14:45]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Eins og aðrir þingmenn tek ég undir mikilvægi þess að þessi skýrsla verði gerð um kosti og galla EES-samningsins, þessa mikilvægasta alþjóðasamnings sem við Íslendingar höfum undirgengist. Það er líka brýnt að vandað verði til verka. Ég dreg hins vegar fram að ég tel engu að síður mikilvægt, eins og ég hef áður bent á, að forsætisráðherra skipi þverpólitíska nefnd líkt og gert var á sínum tíma, bæði í aðdraganda EFTA þegar nefndin var sett undir forystu Gylfa Þ. Gíslasonar um kosti og galla og möguleika Íslands í alþjóðasamhengi. Það sama var gert fyrir rúmum tíu árum þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks setti á laggirnar nefnd undir forystu Björns Bjarnasonar. Sú nefnd skilaði prýðilegri niðurstöðu sem varð mikilvægur grundvöllur til frekari umræðu um hvert Ísland vill halda á sviði alþjóðamála.

Ég tel núna tímapunktinn vera til þess að forsætisráðherra kalli til forystumenn allra stjórnmálaflokka, ræði (Forseti hringir.) grundvöll til þess að skipa slíka nefnd sem kortleggi möguleika Íslands í ljósi alþjóðamála eins og þau eru að þróast núna. Við eigum að fara í þetta saman, ég held að það myndi m.a. auka veg og vegsemd Alþingis.