148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

kostir og gallar aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

478. mál
[14:46]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég er þátttakandi í þessari skýrslubeiðni og fagnaði því að hafa verið boðið að taka þátt í að biðja um skýrsluna. Mér þótti ástæða til að kveðja mér hljóðs því að mér finnst sumir hv. þingmenn túlka það þannig að maður væri með einhverjum hætti á móti þessu samstarfi. Svo er alls ekki. Ég er alveg handviss um að þessi samningur hefur verið lífæð fyrir íslenskt atvinnulíf og skipt okkur alveg gríðarlega miklu máli.

Ég held að skýrslubeiðni sem þessi sé bara gott fóður inn í þá umræðu sem við þurfum að eiga um gildi þessa samnings, sérstaklega í ljósi þess að Bretar eru að ganga út úr Evrópusambandinu. Hvort tíu vikur dugi til að ná fram þeim upplýsingum sem við þurfum verður að koma í ljós en ég held að þetta sé kannski bara upphafið að þessari umræðu. Við þurfum stöðugt að vera í því að meta hagsmuni Íslands og hvernig þeim er best borgið. Ég hef trú á því að það sé innan þessa samkomulags, en við þurfum líka að leggja mat á það.