kostir og gallar aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Mér finnst alveg sjálfsagt að skoða kosti og galla alþjóðasamninga, þar á meðal EES-samningsins. Ég held hins vegar að það sé mikilvægt að við förum ekki að færa umræðuna á þær slóðir hvort við eigum að vera aðili að EES-samstarfinu eða ekki. Ég held að hin aðkallandi spurning sé miklu meira hvort við eigum að ganga alla leið og fara í Evrópusambandið. Þá kalla ég eftir frekari aðkomu stjórnmálaflokkanna. Ég var formaður Evrópunefndar á sínum tíma, fyrir tíu árum, ásamt þáverandi þingmanni Illuga Gunnarssyni og þá fengu allir stjórnmálaflokkarnir sæti í þeirri nefnd. Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og annarra aðila fóru yfir þá aðkallandi spurningu sem við höfum ekki enn leitt til lykta. Þess vegna hvet ég stjórnvöld til að skoða þetta mál með opnari huga því að það er hvorki tilviljun né heimska að 28 Evrópuþjóðir hafa kosið að starfa innan Evrópusambandsins og 19 þeirra hafa tekið upp evruna. Í mínum huga er fullkomlega ljóst að það er eitt stærsta og brýnasta hagsmunamál íslenskra heimila og fyrirtækja (Forseti hringir.) að við göngum í Evrópusambandið og búum við þann stöðugleika sem það samband býður upp á og þann gjaldmiðil sem því fylgir. (Gripið fram í: Nei, nei.) [Hlátur í þingsal.]