148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

fjármálafyrirtæki.

422. mál
[15:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er ávallt ákveðið svigrúm varðandi útfærsluna á innleiðingu til staðar fyrir þjóðríkin. En hérna er fyrst og fremst verið að innleiða og ekki verið að bæta við mörgum efnisatriðum í innleiðingunni, svo ég svari því nú hvað það snertir. En það er sjálfsagt að nefndin fari aðeins yfir hvernig viðkomandi tilskipanir eru orðaðar og hvaða leiðir aðrir hafa farið í þessum efnum.

Það sem mér finnst standa upp úr þegar við skoðum þessi mál eftir á — nú eru bráðum liðin tíu ár frá hruninu — er að sú leið sem við Íslendingar völdum haustið 2008 með neyðarlögunum, með því að gefa í fyrsta lagi innstæðueigendum forgang að eignum, og síðan með því að gera síðar samninga við kröfuhafana um eignayfirfærslu yfir í nýtt fjármálakerfi, er að þetta eru í raun og veru brautryðjandi ákvarðanir fyrir allt sem kom á eftir. Við sjáum þetta nýja evrópska regluverk byggt upp með svipaðri hugsun, þ.e. þegar fjármálafyrirtæki lenda í verulegum kröggum er slíkum forgangi til að dreifa í regluverkinu í dag fyrir innstæðurnar.

Varðandi hitt, samningana við gömlu búin, sem voru mjög flókin úrlausnarefni fyrir okkur og urðu tilefni langrar umræðu í þinginu á sínum tíma — þar hefur Evrópusambandið gengið miklu lengra og staðfestir einfaldlega rétt þjóðríkjanna til að fara með krumlurnar inn í gamla búið og slíta þaðan út eignir eftir þörfum til að koma á fót eða halda lífi í kerfislega mikilvægum fyrirtækjum. Það er meira að segja gengið svo langt að segja: Það (Forseti hringir.) verður ekki allt metið á einhverju markaðsvirði í bóluhagkerfi heldur er réttur til að taka eignirnar á hrakvirði með ákveðnum leiðréttingum eftir á. Það er stórmerkileg þróun og hefur mikla sögulega tengingu við það sem gerðist hér 2008.