fjármálafyrirtæki.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að flytja okkur þessa ræðu og þetta frumvarp. Það eru nokkur atriði sem maður veltir fyrir sér og frumvarpið er reyndar nokkuð stórt í sniðum þannig að eflaust vakna fleiri spurningar í seinni umræðum um það.
Hæstv. ráðherra sagði að menn væru, kannski eðlilega, að velta fyrir sér þeim kröfum sem eru gerðar á fjármálafyrirtæki á Íslandi. Ég held að við séum svo sem ekki á þeim stað, og ég er ekki viss um að ráðherra hafi endilega verið að meina það, að við eigum að slaka á endilega á þeim kröfum. Við höfum brennt okkur mjög harkalega á þessu fjármálakerfi, því er ekkert óeðlilegt að menn geri ákveðnar kröfur til þess.
Mig langar hins vegar að velta upp við hæstv. ráðherra hvort af þessu nýja regluverki, þessum nýju lögum, hljótist einhver aukinn kostnaður, hvort kostnaður muni fylgja þessari innleiðingu sem leggst mögulega á fjármálafyrirtækin sjálf og jafnvel eftirlitsstofnanir líka, þ.e. Fjármálaeftirlitið, og hverjar líkurnar séu á því að þessum kostnaði verði velt út á neytendur, hvort við séum að horfa á það enn einu sinni að þau gjöld sem fjármálastofnanir innheimta af viðskiptavinum sínum muni hækka í kjölfarið og þá hvort búið sé að leggja mat á það hver kostnaðarhækkunin verður af frumvarpinu.
Ég held í sjálfu sér að þetta sé til bóta. Það verður að segjast eins og er, virðulegi forseti, að það var hreint afrek sem unnið var með neyðarlögunum árið 2008. Sú lagagjörð gerði það í rauninni að verkum að við erum á þeim stað í dag að geta sagt að við höfum skotist fram úr flestum öðrum ríkjum varðandi uppbyggingu og endurreisn samfélagsins. En það er hins vegar sorglegt að einn flokkur sem þá sat á Alþingi, þ.e. Vinstri græn, hafi ekki getað tekið þátt í því að tryggja þau lög sem gerðu það að verkum að endurreisnin gat hafist.