148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

fjármálafyrirtæki.

422. mál
[15:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er kannski ekki með mjög nákvæmt svar við þessari spurningu um kostnaðinn, en það leiðir af eðli máls að þegar það vaxa kvaðir að lögum fyrir fyrirtæki til þess að gera áætlanir eins og þær sem hér er verið að fjalla um og eiga í samskiptum við eftirlitsaðila, þá mun það kosta eitthvert starfslið til að sinna slíku. Hvort það er til viðbótar íþyngjandi við það regluverk sem við búum við í dag er erfitt að segja til um. En starfsemi fjármálafyrirtækja er á sama tíma að breytast alveg gríðarlega. Sjáum bara þessa ótrúlegu fækkun útibúa sem hefur átt sér stað sem hefur aftur leitt til þess að starfsfólki fækkar hjá fjármálafyrirtækjum.

Ég held að það megi gera ráð fyrir því að starfsfólki stærstu fjármálafyrirtækjanna á komandi árum muni fækka til viðbótar, það gæti gerst upp á um 10%, jafnvel meira. Um það verða stjórnendur fyrirtækjanna að tjá sig. En það er það sem ég les í þá þróun sem er að eiga sér stað á þessum markaði. Síðan eru sum svið að taka meira til sín. Mér skilst að tölvuþjónustan í stórum fjármálafyrirtækjum í dag standi kannski að baki 20% allra starfa í fyrirtækjunum, forritunarvinna og annað þess háttar. Það er því ekki gott að svara því endanlega hvort þeir sem verða ábyrgir fyrir samskiptum við eftirlitsaðila muni verða íþyngjandi þegar litið er á stóru myndina. Kannski sparast á sama tíma vegna tæknibreytinga störf í öðrum deildum. Ég held að það sé margt sem bendi til þess að fyrirtækin ættu í framtíðinni að geta verið hagkvæmari einingar og þannig dregið úr álögum á viðskiptamenn sína.