148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

fjármálafyrirtæki.

422. mál
[15:30]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Í henni var farið, eins og oft þegar rætt er um þessi mál, svolítið yfir það sem gerðist hérna árið 2008 og hvað á maður að segja, þennan fjármálapeningabankaheim almennt.

Ég fór að velta einu fyrir mér við að hlýða á ágæta ræðu hv. þingmanns, þ.e. í sambandi við það hvenær bankar eða fjármálastofnanir eru orðnar of stórar til að falla, eins og það er kallað. Nú setjum við hömlur og reglur um þær stofnanir vegna þess að málin hafa þróast þannig að ríkið verður að passa að þessi tilteknu einkafyrirtæki — sem eru almennt einkafyrirtæki þótt ríkið eigi reyndar þó nokkuð í bönkum, þá eru þetta almennt einkafyrirtæki — ríkið þarf að passa sérstaklega að þessi einkafyrirtæki fari alls ekki á hausinn vegna þess að það er svo hræðilegt fyrir samfélagið. Það finnst mér brjóta svo mikið í bága við þessa grundvallarhugmynd í kapítalismanum að fyrirtæki eigi að geta farið á hausinn. Þegar einhver stendur sig ekki í samkeppninni, einhver stendur sig ekki að einhverju leyti, þá eiga þau fyrirtæki að fara á hausinn og þau sem standa sig eiga að lifa af. Þetta er kenningin eins og ég skil hana.

Þegar við ræðum fjármálakerfið finnst mér ákveðin grunnatriði sem eiga að leyfa kapítalismanum að ganga upp til lengdar vera svolítið brotin, a.m.k. sveigð. Þetta veldur mér þó nokkuð miklum heilabrotum. Þetta er eiginlega kannski stærsta ástæðan fyrir því að ég kalla mig ekki kapítalista í daglegu tali, þótt mér finnist ýmislegt alveg rökrétt í kenningunni, það er bara vegna þess að þegar kenningin er mátuð við raunveruleikann, þá koma fram svona hlutir eins og það að ríkið þurfi að passa sérstaklega að þeir bankar falli ekki.

Ég veit að í ræðu hv. þingmanns var ekki farið út í þetta í meginatriðum, en snemma í ræðunni sagði þingmaðurinn eitthvað sem varð til þess að ég fór að velta þessu fyrir mér. Ég hef mikinn áhuga á að heyra hvað hv. þingmanni finnst um þessa hluti, að stofnanir séu of stórar til að falla.