148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

fjármálafyrirtæki.

422. mál
[15:34]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem hv. þingmaður talaði um, þ.e. það viðhorf sem var hérna úti um allt, að ríkið myndi ekki leyfa bönkunum að falla, hefur stundum verið kallað, fyrirgefið enskuna, virðulegi forseti, „corporate socialism“ eða fyrirtækjasósíalismi. Var hugmyndin sú að sósíalismi væri fyrir bankastofnanir en kapítalismi fyrir alla hina. Hversu mikið er til í því ætla ég að leyfa öðrum að meta.

Það sem ég er hins vegar að velta fyrir mér núna, vegna þess að hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni og fór svolítið mikið út í það að hætt sé við því að við förum einmitt of langt í hina áttina, að núna kinka allir kolli þegar einhver stingur upp á að auka hömlur á fjármálastarfsemi vegna reynslunnar árið 2008. Ég viðurkenni fúslega að vera í þeim hópi. Ég er afskaplega mikið til í það að hafa hömlur á bönkunum og fjármálastofnunum vegna þess að ég held að það séu hreinlega grundvallargallar í því hvernig þetta kerfi virkar allt saman og við þurfum, því miður, það sem sumir kalla forræðishyggju en er í rauninni bara öryggisnet. Ástæðan fyrir því að þessum reglum er beitt er vegna þess að þetta varðar almenning. Þetta er ekki einkamálefni eigenda bankanna. Það er heili punkturinn. Þess vegna erum við að ræða þetta til að byrja með.

Núna þegar við erum farin að setja þessar hömlur, og eins og ég segi, fólk kinkar bara kolli við hugmyndina, þá velti ég fyrir mér hvernig það passar inn í módel þar sem menn eiga að geta stofnað fyrirtæki, og það á að geta farið á hausinn. Þetta er hin hliðin af því að í staðinn fyrir að bjarga bönkunum þá er passað núna að þeir falli aldrei. Sama spurningin vaknar hjá mér í sambandi við það hvernig samkeppnismódelið sem kapítalískt kerfi á að virka ef við erum búin að passa að þessi tiltekni hluti af fyrirtækjum landsins og heimsins sé svo vel varinn reglum og lögum og forræðishyggju, ef menn vilja kallað það það, að hann geti ekki fallið. Er þetta ekki svolítið á skjön við hugmyndina um hvernig fyrirtækjamarkaður á að virka?