148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

Fiskræktarsjóður.

433. mál
[18:50]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 616, sem er mál nr. 433. Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um Fiskræktarsjóð, nr. 72/2008.

Fiskræktarsjóður er sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins og á forræði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem hefur það hlutverk að veita lán eða styrki til verkefna sem þjóna þeim markmiðum að efla fiskrækt, bæta veiðiaðstöðu, styðja við rannsóknir í ám og vötnum og auka verðmæti veiði úr þeim. Fiskræktarsjóður var stofnaður árið 1970 með lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði. Um sjóðinn gilda nú lög nr. 72/2008 eins og áður sagði, sem tóku gildi 1. janúar 2009.

Sjóðurinn lýtur fimm manna stjórn sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Tveir nefndarmanna skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu Landssambands veiðifélaga, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands stangaveiðifélaga og einn samkvæmt tilnefningu Landssambands fiskeldisstöðva. Ráðherra skipar formann án tilnefningar. Varamenn skal skipa með sama hætti.

Verkefni stjórnar Fiskræktarsjóðs eru m.a. að skila ársreikningum og reglulegu yfirliti um starfsemi sjóðsins til ráðherra, taka ákvarðanir um ávöxtun eigin fjár, og í þriðja lagi að taka ákvarðanir um úthlutanir og útgjöld.

Fyrir störf stjórnar Fiskræktarsjóðs eru greidd laun sem ákvörðuð eru af þóknunarnefnd samkvæmt tímaskýrslu sem formaður sendir ráðuneytinu í lok hvers árs. Allur kostnaður af starfsemi Fiskræktarsjóðs greiðist af fjármunum sjóðsins.

Ráðstöfunarfé Fiskræktarsjóðs er í fyrsta lagi innheimt gjald af veiðitekjum, í öðru lagi arður af eigin fé, í þriðja lagi fjárveiting úr ríkissjóði og í fjórða lagi aðrar tekjur, samanber 4. gr. laganna. Einnig skulu veiðiréttarhafar greiða til Fiskræktarsjóðs 2% gjald af hreinum tekjum af veiði í ám og vötnum á hverju almanaksári. Fiskistofa annast álagningu og innheimtu gjaldsins, samanber 6. gr. laganna.

Á aðalfundi Landssambands veiðifélaga árið 2016 var samþykkt ályktun um Fiskræktarsjóð og þar kemur m.a. fram að aðalfundur Landssambands veiðifélaga feli stjórn þess að vinna að því að fá lögum um Fiskræktarsjóð breytt á þann veg að felld verði niður álagning árgjalda á veiðifélög sem renni til sjóðsins. Áfram verði haldið að úthluta fé úr sjóðnum með óbreyttum áherslum á meðan núverandi fé hans endist.

Um rökstuðning fyrir framangreindri tillögu um breytingar á lögum nr. 72/2008, um Fiskræktarsjóð, vísaði Landssamband veiðifélaga til þess að ýmsum stærri framkvæmdum sem Fiskræktarsjóði hafi verið ætlað að kosta sé nú lokið og því hafi sjóðurinn ekki eins mikla þörf fyrir fjármagn en einnig eigi sjóðurinn uppsafnað fé frá fyrri árum.

Með bréfi, dags. 6. september 2017, skilaði starfshópur sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafði skipað um málið tillögum sínum til ráðherra. Þar er lagt til að álagning árgjalds á veiðifélög verði felld niður en haldið verði áfram að úthluta styrkjum í takt við það sem verið hefur síðustu árin þar til sjóðurinn tæmist. Einnig er þar gerð tillaga um að ákvæði laganna um hámark eigin fjár sjóðsins falli niður. Sömuleiðis gerð tillaga um að fækkað verði fulltrúum í stjórn sjóðsins um einn, þ.e. fulltrúa Landssambands fiskeldisstöðva. Eftir yrðu fjórir í stjórninni og lagt til að atkvæði formanns vigti þyngra þegar atkvæði falli jafnt í stjórninni. Þá er þar gerð tillaga um að ákvæði laganna um viðurlög falli niður.

Helstu rökin fyrir tillögunum eru að eitt helsta hlutverk Fiskræktarsjóðs hefur verið að styðja við uppbyggingu fiskvega til að opna búsvæði ofan hindrana í straumvötnum fyrir hrygningu, seiðauppeldi og veiði á laxfiskum. Þörfin fyrir slíkt var mikil þegar lögin voru sett, en nú er nauðsynlegri uppbyggingu að mestu lokið. Einnig styrkti sjóðurinn byggingu seiðaeldisstöðva fyrir villta stofna en í dag er engin þörf á slíkum styrkveitingum.

Með vísan til framangreinds er lagt til í frumvarpi þessu að lögfestar verði breytingar á lögum nr. 72/2008, um Fiskræktarsjóð, sem starfshópurinn lagði til. Meðal annars er þar lagt til að í 2. gr. laganna verði í stað fimm manna stjórnar gert ráð fyrir fjögurra manna stjórn og að eftirtalin ákvæði falli brott: Liður a í 4. gr. um ráðstöfunarfé sjóðsins, ákvæði 5. gr. um gjald af veiðitekjum, ákvæði 6. gr. um álagningu og innheimtu gjalds af veiðitekjum, 1. og 3. töluliður 7. gr. laganna sem fjalla um lágmarksfjárhæð eigin fjár og loks 10. gr. um viðurlög.

Virðulegi forseti. Ég vil að öðru leyti vísa til greinargerðar þeirrar er fylgir frumvarpinu en þar er ítarlega fjallað um frumvarpið og gerð grein fyrir efni þess. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar.